Þeim var bannað að fara í laugina, þeir voru ekki Múslímar

Dailymail 17.04.2008 - þeim var heldur brugðið feðgunum sem ætluð að fara í sund í bænum þar sem þeir búa, nánar tiltekið Clissold Leisure Centre í  Stoke Newington, Austur London.

Maðurinn Davíd T og 10 ára sonur hans fengu ekki að fara í sund sakir þess að þeir voru ekki Múslímar eða Íslams trúar.  Sá tími sem feðgarnir ætluðu að fara í sund hafði víst verið tekin frá fyrir sérþarfir Múslíma sem hafa stranga aðskilnaðarstefnu sakir trúar.

"Ég spurði hvort að það væri nú ekki í lagi að ég og sonur minn fengum aðgang þar sem við væru já báðir karlmenn, þá var mér sagt að þessi tími væri bara fyrir Múslíma.  Ég vildi næst fá að tala við sundlaugarvörð og vildi fá staðfestingu á þessu, sem hann gerði.

Þessi tími frá kl 8 til 9:30 á hverjum sunnudags morgni er ætlaður sem blygðunarlaus sundtími fyrir Múslíma karlmenn.

Haft er eftir heimildarmanni að það ekki sé hægt að loka sundlaugum  sakir trúar eða sérþarfa trúarbragða og að starfsmenn laugarinnar hafi ekki haft heimild til þess að gera slíkt. 

Innskot(mín orð) - einmitt það já, en ef það var búið að auglýsa slíkt er þetta ekki bara enn annað dæmi um Dhimmi hugsunarhátt Breta þessa daganna. Er þetta það sem friðelskandi umburðalyndir Íslendingar vilja fyrir sitt land, eða halda þessir sumu friðelskandi, umburðalyndu, íslenskir naívistar að við verðum eitthvað undan skilin kröfum Íslam(istans) þegar að því kemur.  Þið fyrirgefið vonandi, ég gleymi því stundum að við erum, klárust og best í heimi og því munu við ekki þurfa að hafa áhyggjur af því sem gengur núna yfir bærður okkar Breta, Dana, Norðmenn, Svía, Hollendinga, Þjóðverja....

Hægt er að lesa alla greinina með því að smella hér grein er lauslega þýdd og endursögð af bloggara.

 

Ég man ekki hver sagði eftirfarandi orð en þau eru á þessa leið "ég er ekki sammála því sem þú segir, en ég virði þinn lýðræðislegan rétt til þess að segja það"að gefnu tilefni þá tileinka ég þetta blogg hinum umdeilda bloggara Skúla Skúlasyni sem hefur verið fórnað að altari hins nýja "ekki 100% málfrelsi" sem virðist lúta auknum vinsældum hér á landi. 

LENGI LIFI MÁLFRELSI, LENGI LIFI LÝÐRÆÐI!!! Verður blogginu mínu lokað þá vitið þið hvers vegna. Nú svo bara til vonar og vara þó ég eigi ekki að þurfa að segja það, þá veit ég vel að hér eru öfga Múslímar, Íslam(istar) á ferð, en það breytir ekki þróun framferði þeirra, þar sem þeir setjast að.

ritskoðun


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo þegar þeir eru búnir að flæma Skúla úr landi, fara þeir og heimta sinn einkatíma í Árbæjarlaug .

conwoy (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 20:55

2 Smámynd: Linda

Sæll Valli minn, takk fyrir það. :)

Sæll Conni - takk fyrir innlitið, skil viðbrögð þín vel, enda er ég búin að hafa sólarhring til þess að velta mér upp úr þessu hneyksli.  En, við skulum samt gæta hófs, treysta því að flestir Múslímar hér á landi áttu engan þátt í þessu, og vilja bara fá að lifa í friði og sátt við samfélagið.  Við hinsvegar gerum kröfur um að lýðræði og málfrelsi lúti ekki vilja þeirra sem þola ekki gagnrýni, eða þá að allir sem sem skrifa móðgandi og  með særandi orðum þurfi að lúta sömu meðferð og Skúli. 

kv.

Linda, 17.4.2008 kl. 21:03

3 Smámynd: Jóhann Helgason

Hæ Linda mín,Þeir verða  bara byggja sér sér sundlaug  smá joke hehe

Bestu kveðjur.

Jóhann Helgason, 17.4.2008 kl. 21:05

4 Smámynd: Linda

ya think hahaha, góður Jói. 

Knús og kv.

Linda, 17.4.2008 kl. 21:14

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Linda mín.

Þetta er mjög alvarlegt og á sama tíma má níða Guð almáttugan, Jesú Krist og Heilagan anda. Það kallast eins og þú sást á öðru bloggi almennt trúarblogg.

Jói virkilega fyndinn hér fyrir ofan.

Megi Guð, Abrahams, Ísaks og Jakobs miskunna íslenskri þjóð.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.4.2008 kl. 21:38

6 Smámynd: Linda

Sæl Rósa mín takk fyrir innlitið.  Við lifum og hrærumst með tjáningu, og þannig er það nú að jafnvel í töluðu máli getur einhver móðgast, en ég sé ekki neina örtröð hjá sýslumanni til að lögsækja alla þá sem tjá sig opinberlega hmmm,...en Skúli átti þetta ekki skilið, og mig grunar að þeir sem þarna komu að voru A. Múslímar sem þola ekki að trúarbrögð þeirra séu skoðuð ofan kjölinn B. Naívistar sem kunna ekki að lesa eða B. Múslímar og Naívistar sem kunna ekki að lesa.  Því það fór ekki fram hjá neinum heilvita manni að Skúli var að þýða orð annarra Múslíma sem og Múslíma sem höfðu fallið frá , sem og helgu rit Íslams sem eru Qur'an og Hadiths.  

knús

Linda, 17.4.2008 kl. 22:08

7 Smámynd: Linda

"ég þarf ekki að vera sammála því sem þú segir, en ég virði þinn lýðræðislega rétt til þess að segja það".

Reyndar gekk Voltaire lengra: "ég er ósammála því sem þú segir, en ég mun verja með lífi mínu rétt þinn til að segja það."

Sakna þeirra sem styðja þetta.

Andrés Björgvin Böðvarsson,

Andrés skrifaði ofangreind orð á öðru bloggi, sem svar við mínum orðum þar sem ég sagði að ég vissi ekki hver hafi sagt ofangreind orð, sem sagt "ég er ekki sammála þér, en ég virði þinn lýðræðislega rétt til ....etc etc...Núna mun ég muna þessi orð eins og þau komu frá Voltaire.  Þakka þér fyrir Andrés.

Linda, 18.4.2008 kl. 00:02

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Muslims nearbyKnús krútta x

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.4.2008 kl. 01:15

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta eru löginn sem lögfræðingur kom með til MBL og krafðist þess að síðunni yrði lokað tafar laust: 

1)L. 94/2000, 4. gr. 2)L. 82/1998, 124. gr.
 233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan
verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta
um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum
…1) eða fangelsi allt að 2 árum.
  1)L. 82/1998, 125. gr.
 [233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt
ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra,
litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar]1) sæti sektum
…2) eða fangelsi allt að 2 árum.]3)

Greinin sem olli þessum viðbrögðum var pistill Skúla um hvort boðskapur í Kóraninum, þýddur beint úr honum,  stæðust íslensk hegningarlög um að hvetja til hryðjuverka á Íslandi.

Lögfræðingur sem ég hef talað við, segir að ef þessi þýðing á pistlinum reynist rétt hjá Skúla sem kemur beint úr Kóraninum, er Kóraninn ólöglegur ásamt meðlimum þeim sem í honum eru á Íslandi samkv. hegningarlögum um samtök aðila sem hvetja til manndrápa. Samkv. því er bannað á Íslandi að stofna til hópa sem hafa manndráp á stefnuskrá sinni.

Ég er ekki lögfræðingur, en ég veit að það er bannað að drepa fólk á Íslandi af hvaða ástæðu sem er, og það er líka lögbrot að skipa, hvetja eða eiga nokkurn þátt í að vita af slíkum verknaði og sá sem ekki lætur yfirvöld vita, er hægt að dæma sem samsekan, jafnvel þó málið sé á undirbúningi, tilraun hafi verið gerð, eða að verknaðurinn sé þegar framinn.

Ég  má senda hverjum sem er alla söguna af samskiptum Skúla við MBL sem hann sendi mér með e-mail pósti.

ÉG PERSÓNULEGA TRÚI EKKI AÐ SVONA HLUTIR GETI SKEÐ Á ÍSLANDI 2008!

Óskar Arnórsson, 18.4.2008 kl. 01:39

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta fyrir ofan er það sem var notað til að loka síðunni hans Skúla..

Óskar Arnórsson, 18.4.2008 kl. 01:40

11 Smámynd: Linda

Sæll Kæri Óskar þakka þér svo mikið fyrir að koma með þessar upplýsingar hér inn, þær gefa víðari innsýn inn í málið, og kannski fólk átti sig betur á málinu fyrir vikið.  Þúsund þakkir fyrir þetta kæri vinur.

Kæra Helga krúttí  jemin eini myndin sem þú settir inn er vægast sagt vafasöm, ég vona að ég verði ekki neydd til þess að fjarlægja hana maður veit ekki lengur vegna íslamavæðingu mogga bloggsins

knús

Linda, 18.4.2008 kl. 01:44

12 Smámynd: Óskar Arnórsson

http://www.youtube.com/watch?v=TyeRMhB1qsg&NR=1

klassiskt fyrir ræningja prentfrelsis á Íslandi. Tekið af öryggismyndavél.

Kallinn sem horfði á þetta á skerminum, gat varla talað fyrir hlátri þegar hann hringdi í lögguna að sækja þessi fifl.

Óskar Arnórsson, 18.4.2008 kl. 02:30

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þá skal eitt yfir okkur báðar ganga Línda mín

Ég bið stuðningsfólk Skúla og tjáningarfrelsisins í heild að líta við, vera samtaka og sýna andúð á þeim ítökum sem múslimar virðast vera komnir með nú þegar á Íslandi. Mbk. http://blekpenni.blog.is/blog/blekpenni/entry/510924/

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.4.2008 kl. 04:22

14 identicon

Sæl Linda mín.

Ég styð Skúla í einu og öllu,ég fór aðeins inn á síðuna hans Guðsteins til að segja mitt álit ( fljóthugsað),en er að verða þreyttur núna. Læt í mér heyra.

Guð vaki yfir þér og öllum þínum

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 04:28

15 Smámynd: Linda

Sæl Helga mín ég mæli með þinni færslu, hún er hreint frábær, þú ert með ljónshjarta kæra vinkona, og það þýðir ekkert annað þegar atlaga er gerð að frelsi okkar allra.

knús

Sæll Þórarinn - hver sem þín viðbrögð eru, þá eru þau réttlát, ég efa það ekki og ég þakka þér innlitið og stuðninginn við Skúla sem og málfrelsi.

knús

Linda, 18.4.2008 kl. 05:22

16 Smámynd: Linda

Sæll Óskar minn það tók mig smá tíma (enda þreytt) að átta mig á samhenginu með youtube vid sem þú settir hér inn, en það er SNILLDAR SAMLÍKING á þessari ritskoðun, ekki spurning, mæli með þessu jemin eini..

knús

Linda, 18.4.2008 kl. 05:24

17 Smámynd: Óskar Arnórsson

Knús tilbaka Linda!

Nota stundum svo mikið af samlíkingum að fólk misskilur mig..

Óskar Arnórsson, 18.4.2008 kl. 06:05

18 Smámynd: halkatla

ég tek undir með Óskari og ykkur öllum. Fyrst komu fréttir af því að einhverjar Islambullur hafi náð að fá settar takmarkanir á tjáningarfrelsið og svo gerist þetta með Skúla!!! Ég styð Skúla alla leið, ég hef viðbjóð á mbl eftir þetta

halkatla, 18.4.2008 kl. 08:44

19 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Flott grein Linda og góð samlíking með sundlaugarsöguna. Ég gleymdi alveg að gera athugasemd hjá þér dúllan mín ... ég vona að mér verði fyrirgefið!  En við stöndum saman gegn óréttlætinu!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.4.2008 kl. 11:10

20 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Samstaða yfir og allt um kring! Þetta gengur vel allsstaðar og æðislegt að sjá hvað allir eru ákveðnir að leiða þetta ótrúlega mál farsællega til lykta.

Ég bíð enn eftir svörum frá YFIRVALDINU sem rak Skúla í útlegð. Við gefumst ekki upp! Baráttukveðjur!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.4.2008 kl. 13:10

21 Smámynd: Íris

Bara svo þið vitið þá er sérstakur tími fyrir konur í einni laug hér á rvk svæðinu...ekki sérstaklega múslima en þær geta nýtt sér það og ég veit um nokkrar sem það hafa gert.

og Anna........ er ég þá ein af þessum islambullum? 

og eitt......við múslimar gerum ekki grín að Guði því við eigum öll sama Guðinn....  annað...við gerum heldur ekki grín að Jesús eða Móses eða Abraham.  

Spámaðurinn sagði:,,þeir eru bestir múslima sem eru bestir við eiginkonu sína"  

Paradís er við fótskor móður. 

Salam til ykkar  

Íris , 18.4.2008 kl. 15:23

22 Smámynd: Mofi

Fín grein Linda og gott hjá þér að styðja Skúla. Sem betur fer virðist blogg heimur almennt vera á því að svona ritskoðun er slæm.

Andrés, takk fyrir að benda á þessi frábæru orð Voltaires. Svona mikils var málfrelsið fólki sem brjóst út úr samfélagi sem þaggaði niðri í fólki sem var með aðra skoðun en það.

Vill svo til að í dag er frumsýnd myndin "Expelled" sem fjallar um skoðana kúganir darwinista gagnvart þeim sem aðhyllast ekki þeirra lífsviðhorf.  Ég fjallaði stuttlega um það hérna: Frumsýning á myndinni Expelled!

Mofi, 18.4.2008 kl. 15:24

23 Smámynd: Linda

Mig langar að bjóða hana Írisi velkomna, og segja við hana, hér ær engin að gera grín af Guði, hér má hinsvegar tala um Guð, Jesú og postulana, sem og Muhamad og Íslam.  Ég spyr þig Íris, ert  þú sammála því að það eigi að loka bloggsíðu sem skrifar hluti sem þú ert ekki sammála? Varðandi sundlaugina sem þú nefnir, þá langar mig að fá nafn og staðsetningu svo ég skoðað ástæðuna þar á bak við nánar.

Sæll Haukur minn - mikið er gott að sjá þig hér, inni og takk fyrir athugasemdina.

Sæl Anna - takk fyrir athugasemdina og samhuga.

Halldór -  Já Voltaire og þessi orð hans ættu að vera upphrópunar matra hvers og eins sem vill að málfrelsi sé virt.

Sæll Óskar - þú ert mjög duglegur að koma fólki á óvart, þetta var snilldar samlíking.

Knús til ykkar allra

Linda, 18.4.2008 kl. 16:43

24 Smámynd: Yousef Ingi Tamimi

"I spoke to a number of Muslim friends, and none of them had heard of a religious prohibition on swimming with non-Muslims.

Af hverju þýddiru ekki alla fréttina, eða amk báðar hliðarna af fréttinni? Ég skil í raun ekki af hverju þarna voru bara karlmenn syndandi, það er í raun voða heimskulegt og  aðskilnaður milli Íslam og Kristni er ekki til. Íslam boðar það að ég skuli fræða þig um trúna, en ef þú viljir ekki taka þátt í henni þá verð ég bara að sætta mig við það. Ég má ekki mismuna þér eða neitt þrátt fyrir þá staðreynd að þú neitaðir að taka trúna Íslam.  Eini aðskilnaðurinn sem er til staðar í Íslam er á milli karla og kvenna og þá að þau skulu t.d. ekki synda saman.´

Margar konur á Íslandi, sem eru ekki múslimar, vilja oft ekki synda á meðal karlmanna og finnst mér það bara sjálfsagt að virða það og að hafa sér tíma fyrir þær

Yousef Ingi Tamimi, 18.4.2008 kl. 20:17

25 Smámynd: Linda

Sæll Yousef Ingi,  Þakka þér innlitið.  Ég þýddi ekki alla fréttina einfaldlega vegna þess að að þá hefði þurft að sækja um leyfi frá blaðinu og það tekur tíma þegar maður er ekki blaðamaður.

Ég tók aðalatriðin úr fréttin, samsagt viðbrögð feðganna sem og sundlaugavarða og vísaði í  að hægt væri að lesa frekar um málið í heild sinni á öðrum vef.

Ég veit vel hver ykkar (sumra ekki allra) afstaða er til Kristinna manna og Gyðinga, við erum Svín og apar, eða neitar þú því að það standi í Qur'an? Ég veit líka að samkvæmt Íslam þá erum við þó með einhverja trú, þá er mælt með því að við greiðum verndarskatt eða Jitzha sem er notaður vel í löndum Íslams.  Ég geri mér líka grein fyrir því að það eru mismunandi fylkingar innan Íslams, eins og t.d. Sunní eða Shía og þá sem stunda Wahabisma sem tengist inn til Sádi Arabíu og hefur náð að klekjast út víðar. Ég geri mér líka fyllilega grein fyrir því að Múslímar almennt eru hið ágætasta fólk, og ég tala ekki gegn þeim, en, og ég segi en, því miður þá er það nú þannig að Íslamistar kæfa niður raddir þeirra sem tala gegn öfgum, jafnvel úr röðum hógværa Múslíma sem vilja fá að stunda sína trú í friði.

Já ég veit ýmislegt enda vel læs.  Þér er velkomið að útskýra mál ykkar hér á þessari síðu, jafnvel kinna muninn á shía og súnní og e.t.v .segja hvaða fylkingu þú tilheyrir. 

Ég hef bent öðrum á sem hafa komið hingað inn á  mína síðu að fara varlega að gefa í skin að ég sé að segja eitt og meina annað, slíkt fær mig til að sjá rautt. 

Það er spéhræðsla í konum og körlum líka, en það er ekki ástæða til að fara fram á að aðrir lúti þínum ótta, við verðum að sigrast á því sem gerir okkur veik.  Slík skref eru ekki auðveld.

takk fyrir komuna.

Linda, 18.4.2008 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband