1.2.2010 | 07:35
þvílíkt bull
Kanarnir get séð um sína eigin ímyndaða eða raunverulegu hryðjuverkamenn, án þess að blanda okkur í málið, við eigum nóg með að díla við Bullurnar Breta og þeirra hryðjuverkastimpil á okkur, án þess að við förum að taka rusl frá BNA.
|
Leggur til að fangar verði fluttir til Íslands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.1.2010 | 19:18
Darling, Darling...
Let me make this simple for you, we are not refusing to pay. How hard can it be for you to understand this. We are calling for a fair treatment, payment will be made, we will honor any and all legal obligations, but we will not be treated with disrespect and unreasonable deals from your nation or any other nation.
Perhaps people should ask them self, if they´d be prepared to take on the same type of burden that we in Iceland are being asked to take. I seriously doubt it.
Threats are the fools abuse of power.
|
Bretar leita til ESB |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2009 | 12:43
ÞÚ SKALT LIFA....
Ég var bara ekki alveg viss hvað ég ætti að setja í fyrirsögn, helst vegna þess að einn af bloggurum mbl hefur haft aðfinnslur af atburðum sem spruttu út frá hræðilegu sjóslysi við strendur okkar, notar orð eins og "trúarklám" svo ekki sé meira sagt.
Við sem höfum lesið frásögn þess sem komst lífs af, og er m.a mjög skírt tekið komið fram að farið hafi verið með Faðirvorið á þessari ögurstund, annað er ekki hægt að lesa úr þessu en það, að báðir voru þessir menn að undirbúa sig að gefa líf sitt í hendur Guðs.
Ekki fæ ég lesið úr því að slíkt sé "trúarklám". Síðan er veitt leyfi að leyfa frásögn um hina fullkomnu fórn sem var gerð í ísköldum sjónum á ögurstund milli lífs og dauða. "þú skalt lifa" voru þau orð sem notuð voru. " er það trúarklám að gefa leyfi á frásögn um slíka fórn"?
Þetta eru orð með djúpa þýðingu, bæði fyrir sakir þess sem komst lífs af og þess sem lagði líf sitt í sölurnar fyrir annan mann.
Hafir þú einhverja almenna vitneskju um ritninguna þá veist þú að þessi fórn er æðsta fórn sem maður getur gert fyrir aðra persónu, að fórna lífi sínu fyrir annan er fullkomin kærleikur og ást. Jesú gerði slíkt og þessi maður gerði slíkt hið sama. Blessuð sé minning hans.
Í Jóh 15:13 segir m.a þetta
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.
Er það ekki merkilegt að þeir sem ekki trúa, fara í orðastríð gegn þeim sem höfðu fengið leyfi ættingja til að birta nákvæmlega frásögn um slíkan kærleika og gera lítið úr því sem snerti hjörtu okkar djúpt.
Megi þessi orð "þú skalt lifa" ávalt minna okkur á að Jesú gaf upp líf sitt svo við mættum lifa, rétt eins og sjómaðurinn sem sagði þessi orð, magnþrunginn kærleikur og já kraftaverk í sinni hreinustu mynd.
Ég bið að Guð blessi hvert ykkar og geymi á þessum ögurtímum sem við lifum.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.11.2009 | 20:47
Fíló umræðan kallar á naflaskoðun allra samfélaga og kirkna.
Ég veit að það er afskaplega erfitt fyrir marga að sætta sig við hvað Ritningin hefur að geyma sérstakleg þegar það kemur að syndinni, þá verður Biblían gömul rulla sem maður þarf ekki lengur að fara eftir, hún er ekki rétti siðferðislegi mælikvarðinn lengur o.s.fv. Jesú hafði eitt siðferði og það var siðferði Guðs, fullt af kærleika til okkar, fyrirgefningu til okkar, kennslu til okkar og hann hélt uppi spegli samfélagsins þá og í dag.
Við erum öll syndug, eingin á þessari jörðu í dag er syndlaus. Sá sem hafði þann heiður dó á krossinum fyrir 2000 árum síðan, og tók á sig syndina, en viti menn hann tók ekki á sig iðrunina, heldur tekur hann við henni í dag á hverri einustu mínútu, sekúndu tekur hann á móti iðruninni frá fólki eins og þér og mér.
Hann krefst þess að við iðrumst og biðjum stöðugt, hann krefst þess að við sínum hvort öðru kærleika enn ástundum leiðréttingu ef þess er þörf.
Ég ætla ekki að nefna einu nafni eina synd sem gæti komið til greina að þurfi leiðréttingu. Heldur vildi ég segja að öll höfum við syndgað og skortum dýrð Guðs, en öll höfum við möguleika á fyrirgefningu punktur.
En þetta nýjasta dæmi í fjölmiðlum sínir okkur einfaldlega að kirkjan verður að taka sér tak, prestar verða að hafa þor og dug að vinna við að kenna að allir iðrist synda sinna og benda á allt sem miður fer, þegar tekið er tillit til hinna Guðlegu "siðferðislegu mælistiku". Auk þess sem slíkt mun gefa kirkjunni líf að hafa þor og dug að taka fyrir öll málefni sem eru erfið, að gera engan greinamun á syndaranum. Ein synd er engu stærri en önnur synd.
Þetta hefur kirkjan gert um aldaraðir, en núna er "samfélagslegrétthugsun" sem ræður ríkjum, það mætti segja að þetta séu hin nýju trúarbrögð þar sem hið mannalega siðferði er talið það eina sem þarf til.
Því er það tilvalið að kirkjan standi á hinu "Guðlega siðferði" tali hreint út til allra, hætti að tala undir rós, haldi síðan ljósi fyrirgefningar á lofti, kærleikans og lausnirnar sem er í Jesú Kristi syni Guðs. Enga hræsni, enga afsökun heldur hreinleiki, kærleiki og heiðarleiki í einu og öllu. Þar til við sitjum saman við sama borð ekki einn öðrum betri, hönd í hönd, syndug fyrir framan frelsara okkar og biðjum hann vægðar af okkar hegðun, hroka og hjáguðsdýrkun.(samfélagsleg rétthugsun svo dæmi sé tekið)
Að lokum, það er kraftur í orði Guðs, hvort um sé að ræða kærleikskennsla, leiðrétting á líferni, hátterni, fyrirgefning og dýrð sem fá orð fá lýst. Verum bræður og sistur í raun, látum ekkert ógert til að fólk öðlist fyrirgefningu, en munum og höfum það alltaf að leiðarljósi að öll erum við syndug og við getum ekkert aðhafst nema gera iðrun sjálf og breyta okkur sjálf, að halda uppi spegli Jesú og gera sömu kröfur til okkar og við gerum til annarra í samfélaginu.
Ég bið að almáttur Guð varðveiti okkur hvert og eitt og núna þegar við undirbúum Kristmessu, skulum við sýna hvort öðru kærleika (sem og alltaf) og gefa ekki óvininum færi á okkur til þess að nota okkur í sínu stríði við samfélag Krists.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.11.2009 | 23:57
Til presta
Núna þegar það dregur nær að við höldum upp á Kristmessu hér á landi sem og í öðrum "Kristnum löndum" langar mig að minna presta á að hafi þeir ekki trú að Jesú hafi verið getin af Heilögum Anda, að móðir hans hafi verið hreinmey ung og saklaus stúlka, ættu viðkomandi prestar að taka af sér kragann og sinna sinni sönnu köllum sem er t.d. trúarbragðafræði.
Hafir þú ekki ekki trú fyrir þessu einstaka kraftaverki getur þú ekki verið þjónn Guðs, því þú afneitar Guði sjálfum sem kom í manslíkan sem Jesú Kristur, hann fæddist af jómfrú var syndlaus frá getnaði til upprisu. Hafir þú hinn minnsta vafa um um trú þína taktu þér tak, hafðu hugrekki til að yfirgefa brauðið og gefa öðrum sem hafa sanna trú tækifæri að sinna þeim sem sækjast af öllu hjarta í Guð almáttugan.
Er ég harðorð í orðum mínum, það má ef til vill svo vera, en eitt er víst, að ég hef upplifað siðferðisbrest prests hér á landi og var ég þá ung að aldri. Ég líka hef sé misbrest í þjónustu Biskupsstofu við sóknarbörn í samskonar máli og ég kalla eftir siðferðislegri vakningu innan kirkjunnar, heiðarleika í starfi og í framkomu.
Sem prestar eruð þið hvorki betri eða verri en við, hinsvegar sem prestar Krists á þessari jörðu, ber ykkur að efast ekki um neitt sem að honum kemur, siðferði ykkar þarf að vera öllum framar, og hafið þið þetta ekki í ykkur, ber ykkur að leggja frá ykkur kraga og hempu.
Kristmessa mun innan tíðar vera haldin hátíðleg í okkar þjóð, Aðventan mun kalla á undirbúning, bæði með föstu og hátíðarbrag. Það er kominn tími að fólkið taki trú sína og hrópi eftir sannri köllun presta til þjónustu. Þetta er ekki bara starf, þetta er lífstíll, þetta er köllun, hafir þú ekki köllun....
Læt þetta duga.
23.10.2009 | 13:08
Sharía-vopn til kúgunnar og mannréttindabrota.
Já vildi óska þess að þetta kæmi mér á óvart, en ég sem og aðrir höfum rætt um Sharía löggjöfina á m.a. mbl blogginu, mörgum til mæðu þar sem þeir gerðu sér ekki grein fyrir því að Sharía er notað í öfga trúartúlkun innan Íslam.
Því miður breiðist þessi óssiður hratt út um Afríku og sæmdarmorð færast í aukanna í vestur Evrópu allt þetta er hægt að reka til Sharía. Við megum ekki missa sjónir af því að þetta er að færast í aukanna innan Íslam, Egyptar berjast gegn þessu sem og Jórdanar, hinsvegar virðist sem svo að þessi barátta ætli að reynast þeim erfið, og miðað við framganga mála í Afríku þá er voðinn vís.
Vestur Evrópa og BNA verða stemma stigum við því að Íslamskar konur fái að hylja sig alveg (búrkum) hví segi ég það í samhengi við þessa frétt, því Sharía er á bak við slíkt í flestum ef ekki öllum tilfellum.
Í Sómalíu eru konum ekki leyft að vera í brjóstahöldurum, gerast þær sekar um slíkt, er þeim misþyrmt.
Svo í lokin, erum við tilbúin að horfa á sæmdarmorð, erum við tilbúin að sjá konur ganga um í búrkum vitandi að öfgar hylja sig í skjóli þess fatnaða. Persónulega er ég ekki tilbúin til þess.
Verum miskunnsöm hvert við annað, eins og ritningin kennir okkur, en horfum óhrædd á staðreyndir og verum miskunnsöm með því að vera vakandi fyrir misþyrmingu kvenna í skjóli trúarbragða og "trúfrelsi" lokum við augunum fyrir slíku er miskunn okkar orðin að engu.
|
Hýddar fyrir að klæðast buxum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
17.10.2009 | 10:42
Griðastaður rofin
Stundum er erfitt að sjá alla myndina nema að hún sé undir góðu ljósi. Mér þykir þetta afskaplega sóðalegur framgangur gegn prestinum af hálfu lögregluyfirvalda sem og blaðamannsins. Kirkjan er griðastaður og sem slík á ekki að vera hægt að ráðist gegn henni með þessum hætti. Fólk sem sækir vernd inn í kirkjur eru að sækja sér vernd undir hærra valdi en hinu veraldlega. Presturinn er sannur guðsmaður og það væru óskandi að fleiri prestar hefðu þetta hugafar í dag.
Jesú sagði: það sem þið gerið þeim sem minnst mega sín, gerið þið mér...(ekki orðrétt úr ritningunni, en kemur því til skila sem þarf)
Þessi orð hans eiga við bæði góða og slæma hluti, hugsið ykkur, hvað þessi aðför að prestinum og fólkinu undir hans vernd hefur sært Frelsarann.
Kirkjan á að vera griðastaður punktur.
|
Prestur ákærður fyrir að aðstoða flóttamenn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
8.5.2009 | 18:14
Vá, hvað þarf til
Eru Íslenskir stjórnmála menn fæddir þorskhausar eða er þetta lærður eiginleiki, heimskan og undirlátssemin er algjör skandall. Slítum stjórnmála sambandi við Breta og það strax. Sendiherra þeirra gat ekki einu sinni séð sér fært að koma á fund við okkar fólk. Hvað eigum við að láta þetta hyski fá að vaða lengi yfir okkur á skítugum skónum. Burt með þá og það í gær.
|
Mótmæli vegna Gordons Brown |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2009 | 14:06
Who, who, who spurðu Egyptar, hver veit, drepum bara svínin..ahem.
Annaðhvort hlustar fólk á "WHO" eða það hagar sér eins og þessi frétt er fullkomið dæmi um. það er líka haft eftir vel þekktum Múslíma á íslandi segja í fréttum "þess vegna borðum við ekki svín" það er ekki svo einfalt hehe, þeir borða ekki svín vegna þess að ritningin þeirra sem og okkar átelur að svín séu óhrein, sem er skiljanlegt þegar við skoðum hvernig svín voru notuð á tímum Gt svo dæmi sé tekið. Þetta voru dýr sem voru á öskuhaugum, þau átu allt sem var ætt og óætt
, þar á meðal líkamsleifar dýra já og manna sem þar var hent.
Svín eru ekki verri en önnur dýr sem við étum sjáum bara hvað fólk getur sýkst af, vegna nautakjöts og lambakjöts, hvað þá villibráðar eins og hún þekkist í mismunandi heimshlutum.
Það sem skiptir máli er hreinlæti, upplýsingar og skinsemi. Óþarfi að hræða fólk með svona bulli eins og í Egyptalandi.
Svínaflensan er einn factor í stærri flensu þar á meðal fuglaflensunni og almennri inflúensu, þetta þrennt kom saman í Mexico og úr því varð sú veira sem núna herjar á heiminn, að drepa öll svín hefur engin áhrif á útbreiðslu flensunnar. Það var bent á hér ekki fyrir svo löngu að það ætti að kalla þessa veiru Mexikönsku flensuna, ég tel að það sé í raun það eina rétta í stöðunni.
Ég tek það fram að ég er sjúkdóma fælin, já mikið rétt hehe, en ég hlusta á sérfræðingana í þessum málum og fer eftir ráleggingum þeirra sem og ég býst ekki við að ég fari til Mexico á næstunni, ahem 
Þvo hendur fólk, nota sótthreinsunar klúta sem fást í apótekum þegar þið farið út að borða, og please please haldið fyrir vitin ef þið hnerrið eða hóstið og þvoið ykkur svo um hendurnar, almenn skinsemi er það sem við þurfum að hafa í huga.
|
Átök í Kaíró vegna slátrunar svína |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.4.2009 | 14:22
Þessar hafa ekki fengið siðferðisleg sterkt uppeldi eða aga.
Er fólk í alvöru hissa að þetta skuli vera að ske, öll réttindi foreldra og yfirvalda eru komin í hendur barnanna. Ég er ekki á móti barnavernd langt því frá, en maður lifandi, fólk verður að fá að ala börnin sín upp og já skamma og flengja ef þess er þörf, agi er af hinu góða. þetta er fullkomið dæmi um agaleysi og ábyrgðaleysi í uppeldinu. Svona gera ekki vel upp alin börn, með gott siðferði og sjálfsaga.
Eflaust verða mér margir óssammála, það er allt í lagi ég er búin að segja mitt álit. Flenging á hinsvegar að vera síðasta úrræði þegar barn er alið upp, og á ekki að þurfa oftar en einu sinni og vonandi aldrei.
Ég vona að þessar stúlkur sem þarna komu að verði allar sóttar til saka, og fái uppskorðið sem þær hafa sáð.
|
Formleg kæra lögð fram |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
26.4.2009 | 13:02
Til Hamingju Íslendingar, vonin er komin á ný með Lóunni :)
Aftur mun ég opna bloggið tímabundið, sakir þess að ég vil fá að tjá mig um þessar kosningar, mína afstöðu til vinstri þróunarinnar og hvers vegna sem Kristinn einstaklingur slíkt sé mér ásættanleg útkoma.
Ég er mikil stuðningskona hennar Jóhönnu hef alltaf verið það, fyrir mér hefur hún ávalt verið rödd þeirra sem minna mega sín í samfélaginu, hún hefur barist af ástríðu fyrir landann og oftar en einu sinni verið höfð að háði fyrir ýmislegt sem var henni huglægt. Þrátt fyrir það, er þessi kona í dag leiðtogi landsins okkar, já Guð er réttlátur Guð, hann þekkir sína og situr vörð um þá, hjarta hennar og einlægni er okkur til sóma.
Þrátt fyrir aðdáun mína á Jóhönnu þá var atkvæði mínu ekki auðveldlega kastað, eins og ætla mætti miðað við ofangreind skrif, já ég íhugaði VG, en afstaða þeirra til hinna ýmsu heimsmála var og er gjörsamlega óásættanleg í mínum huga, auk þess var fólk á þeirra lista sem ég get ekki afborðið, og læt þar við sitja. Í þessum flokki þrátt fyrir sterkan og góðan mannúðaranda er líka öfgaandi sem er ógnvekjandi og þar með var málið í mínum huga afgreitt.
Ég vil þó hafa eitt á hreinu, við erum mörg sem erum í hinu trúaða samfélagi sem eru sama sinnis þrátt fyrir að hafa kosið samfó, þá er ég gjörsamlega á móti allri aðild í ESB. Samfó má engan vegin ganga út frá því að þrátt fyrir þennan sigur, þá bendi slíkt til að landinn og allir sem kusu flokkinn vilji ganga inn í fyrrnefnt bandalag.
Svo í lokin, þá er ég nokkuð viss um, að VG og aðrir sem eru á móti aðild í ESB, munu standa vörð um slíkar viðræður, þjóðin mun fylgjast vel með og ástunda að læra meira um málið, og við munum ekki þegja um þau lönd sem sitja á hakanum innan ESB þrátt fyrir að vera aðildarríki, þau lönd sem eru á barmi fátæktar og kreppu þrátt fyrir aðild, sem hafa ekki ekki séð blómstrandi efnahag þrátt fyrir evruna. Já það er margt að fylgjast með á komandi tímum.
Ég vil benda fólki á vefin www.ossammala.is til að láta rödd sína heyrast. Auk þess vil ég benda nokkrum samtrúuðum einstaklingum að þessar kosningar þýði ekki að við séum orðnir sovéskt Ísland, ahem
. Heldur erum við með sönnu orðið land sósíalismans sem er ekki það sama og vera land kommans
.
Ég bið að Guð blessi þjóð okkar og leiði hana inn á veg réttlætisins og friðar, sem er honum þóknanleg.
|
Nýtt Alþingi Íslendinga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.4.2009 | 07:04
Nú loka ég blogginu aftur, og hægt er að fá lykilorð að því
Takk fyrir lesturinn, þið sem gáfuð ykkur tíma að fylgjast með mér um Páskana. Núna er tími komin á að loka þessu aftur.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
- Biblian og ritningin
- Bloggar
- Bækur
- dýr
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Íhugun
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Ofsótta kirkjan!
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- þýddar fréttir
- Öfga Íslam
Bloggvinir
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Úlfar Þór B Aspar
-
pirrhringur
-
Ása Gréta
-
Birna Dis Vilbertsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Mofi
-
Ruth777
-
Jóhann Helgason
-
Flower
-
Helena Leifsdóttir
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Guðni Már Henningsson
-
Birgirsm
-
Árni þór
-
Kristín Ketilsdóttir
-
Theódór Norðkvist
-
Guðlaug Helga Ingadóttir
-
Tóti
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Ragnheiður Katla Laufdal
-
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
-
Ragnar Kristján Gestsson
-
Arnar Geir Kárason
-
Unnur Arna Sigurðardóttir
-
Tinna Jónsdóttir
-
Heimir L Fjeldsted
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Yngvi Rafn Yngvason
-
Morgunstjarnan
-
Stefán Garðarsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Pétur Björgvin
-
Friðrik Páll Friðriksson
-
Bumba
-
Ólafur Jóhannsson
-
Kristinn Ásgrímsson
-
Jón Valur Jensson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Hörður Finnbogason
-
Sunna Dóra Möller
-
Janus Hafsteinn Engilbertsson
-
Jakob
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðmundur Pálsson
-
Jón Hjörleifur Stefánsson
-
Halla Rut
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Óskar Arnórsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Adda bloggar
-
Ingibjörg
-
Steingrímur Jón Valgarðsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Mama G
-
Sigríður Jónsdóttir
-
Eiríkur Ingvar Ingvarsson
-
Gestur Halldórsson
-
Högni Hilmisson
-
Magnús V. Skúlason
-
Sævarinn
-
Kristján Björnsson
-
Kristján Magnús Arason
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson
-
Svanur Heiðar Hauksson
-
Ragnar Sigurjónsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Gunnlaugur Snær Ólafsson
-
Svala Erlendsdóttir
-
Bergþóra Guðmunds
-
Alfreð Símonarson
-
Ingvar Leví Gunnarsson
-
Kjartan Guðmundur Júlíusson.
-
Guðrún Markúsdóttir
-
Alexander Kristófer Gústafsson
-
Matti sax
-
gudni.is
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Hdora
-
Snorri Bergz
-
Ragnar Gunnarsson
-
Jóhann Hauksson
-
Julie
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Jeremía
-
Vendetta
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Guðríður Haraldsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Tyrfingur Heimir Tyrfingsson
-
Björn Heiðdal
-
Gunnar og Jenný
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Arna Einarsdóttir
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Írena
-
Mótmælum Durban II
-
Baldvin Jónsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Meðvirkill
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
Bwahahaha...
-
Guðjón Baldursson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
-
Magnús Karlsson
Nýjustu athugasemdir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 19
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 66
- Frá upphafi: 106801
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 34
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Nota bene
LIve spjall
Spjallaðu við mig beint hér
Bækur
Lestur til góðs
Hér verða góðar bækur fyrir sálina, eða ég vona það alla vegana.
-

: Face to Face With God (ISBN: 978-1599790701)
Frábært maður með einstakan eiginleika til að koma orði Guðs frá sér á skiljanlegan máta. Einn áhrifamesti safnaðarhriðir í BNA í dag. Hann og Rob Bell eru hið nýja afslappaða andlit trúarinna á Jesú, heitir, svalir og í orðinu.
-

: This Present Darkness and Piercing the Darkness (ISBN: 978-1581342147)
Spennandi skáldsaga um Engla og dímona og baráttu þeirra, dúndur góð lesning, mjög spennandi, Þetta er eitthvað fyrir alla. Sögu þráður tengist litlum bæ og yfirnáttúrulegum atburðurm. -

: The Shack (ISBN: 978-0964729247 )
Stórkostleg bók! Fáum hana til landsins.
Tenglar
áhugaverðar síður
- Biblían á netinu
- Dr. Homa Darabi
- Lindin Kristilegt útvarp
- Brussels Journal Margt fróðlegt að lesa hér.
- RR og uppskriftir hey hún talar mikið enn eldar vel.
- Bíómyndir, leikarar Fyrir þá sem fíla popp og kók í bíó.
- Mogginn þetta er jú mbl blogg
- Bjarmi áhugaverðar greinar
- Honest thinkings ekki fyrir söfnuð pólitíska rétttrúnaðarins.
- Kristni í dag, fréttavefur trúaðra á ensku Fréttavefur með kristnum áherslum
- Ísland Ísrael Ekki fyrir anti-semíta.
- Kross ganga Fréttir og annað í kristilegu samhengi.
- Ert þú góð/ur persóna SPURNINGARLISTI Hmmmmmm
- Íslenska Kristskirkjan Lúthersk fríkirkja. Frábær Presthjón þarna á ferð. Frábær kirkja.
- Vinir Ísraels Biðju Ísrael Friðar
- Barnabas Fund til stuðnings hinni ofsóttu kirkju.
Trúarbrögð
Hér eru allir þræðir sem ég hef skilgreint að tengist trú. Auðveldar að leita eftir þannig efni eftir mig.
- Jerúsalem er borg Gyðinga 20 ára ransókn, staðfestir rétt þeirra.
- Times Square Church-messur Hver mann ekki eftir "Knive and the kross"
- Islam og Jerúsalem á Islam rétt til Jerúsalems?
- Guðfærðilegt efni um mismunandi trúarbrögð td. Religious studys resourses.
- Hlið Zion´s Vegna Gyðinga eigum við arfleið sem er Jesú, það er kominn tími að við segjum Takk Fyrir !
- Biblían - Hebreska með Enskri Þýðingu Líka hægt að hlusta á Hebreska lesningu
- Gríska Nýja testamenttið, Ensku og frumtexta Hér er NT á Grískum texta og enskum
- Hvað er satt og ósatt með ástandið í Israel. Mjög áhugaverð síða. Fyrir þá sem vilja heyra aðra hlið málsins.
- Þræðir eftir mig sem eru trúarlegs eðlis bara kíkið og fléttið.
- Íslam og ofbeldi í sögulegu samhengi. hér er farið yfir þá staðreynd að Íslam hefur sjaldnast verið til friðs.
Önnur Blogg
önnur blogg enn mbl blogg
- Prívat bloggið á msn spaces fréttir af mér persónulega og gjörningum.
- Hermdarverk, skrifandi Skúli Skúlason Hér er tekið á erfiðum flóknum málum bókstafstrúar og öfga innan Íslams.
- Halkatla aka Anna Karen og nýja bloggið!!! Ein af bestu bloggurum okkar á Íslandi
- Jón Valur Jenson á Kirkju.net Hér talar hann um fóstur, fósturvísa sem og önnur viðkvæm málefni samfélagsins.
RSS-straumar
Dhimmi Watch
að búa við Íslam, fyrir þá sem eru ekki Íslams trúar
Dhimmi Watch
Augnablik - sæki gögn...
Frelsi
Pólitískur rétttrúnaður á ekki heima hér
International Christan fréttir
Augnablik - sæki gögn...




