Fyrir sakir nafn míns munið þið dæmdir verða.

Jesus-2til eru þeir sem gera lítið úr trú minni, þeim finnst ég íhuga orðið of mikið, vera of mikið að pæla í orðinu.  Ég hinsvegar hef játast Jesú hef gert hann að mínum lífsfélaga, ekki gengur þetta alltaf vel enn þegar ég fell frá þá kippir hann mér til baka og samferðin hefst á ný og ég gef Guði dýrðina fyrir það.

Það sem syrgir mig meira enn nokkuð annað er fráfall frá boðum Jesú, bæði í mér og öðrum, enn það sem gleður mig er það að ég get alltaf leitað til jesú með þarfir mínar, vanskilning og  já vanmátt gegn þeim sem hata mig.  Jesú sagði " þið sem trúið á mig, munið verða ófsóttir fyrir það" Núna eru trúaðir ofsóttir vegna þess að þeir lesa ritninguna, sækja í hann til kennslu, leiðréttingar og boðskap, og það er vegna þessa sem sumir telja sig geta hatað okkur, bera ljúgvitni gegn okkur vegna þess eins að við afneitum ekki orðinu sem okkur er gefið til þess eins að fitta inn í samfélagið að vera í pólitískum rétttrúnaði. 

Enn orðið á það til að lýsa ljósi þar sem myrkur hefur sest að hvort það sé í manns eigin lífi eða annara.  Ég læt Guð um að leiðrétta það sem þarf að leiðrétta, enn sá sem gerir lítðið úr Jesú gerir lítið úr Guði, og sá sem smánar annan sem er trúaður á Jesú smánar sjálfan sig ef viðkomandi er trúaður, því við erum eftir allt saman einn líkami sem er Kristur Jesú.

rós

Hið almenna bréf Júdasar 1:

 

1
Júdas, þjónn Jesú Krists, bróðir Jakobs, heilsar hinum kölluðu, sem eru elskaðir af Guði föður og varðveittir Jesú Kristi.
2
Miskunn, friður og kærleiki margfaldist yður til handa.
3
Þér elskaðir, mér var það ríkt í huga að rita yður um sameiginlegt hjálpræði vort. En nú kemst ég ekki hjá því að skrifa og hvetja yður til að berjast fyrir þeirri trú, sem heilögum hefur í eitt skipti fyrir öll verið í hendur seld.
4
Því að inn hafa læðst nokkrir menn, sem fyrir löngu var ritað um að þessi dómur biði þeirra. Þeir eru óguðlegir menn, sem misnota náð Guðs vors til taumleysis og afneita vorum einasta lávarði og Drottni, Jesú Kristi.
5
Ég vil minna yður á, þótt þér nú einu sinni vitið það allt, að Drottinn frelsaði lýðinn úr Egyptalandi, en tortímdi samt síðar þeim, sem ekki trúðu.
6
Og englana, sem ekki gættu tignar sinnar, heldur yfirgáfu eigin bústað, hefur hann í myrkri geymt í ævarandi fjötrum til dóms hins mikla dags.
7
Eins og Sódóma og Gómorra og borgirnar umhverfis þær, sem drýgt höfðu saurlifnað á líkan hátt og þeir og stunduðu óleyfilegar lystisemdir, þær liggja fyrir sem dæmi, líðandi hegningu eilífs elds.
8
Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla tignum.
9
Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Míkael að leggja lastmælisdóm á djöfulinn, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: ,,Drottinn refsi þér!``
10
En þessir menn lastmæla öllu því, sem þeir þekkja ekki, en spilla sér á því sem þeir skilja af eðlisávísun eins og skynlausar skepnur.
11
Vei þeim, því að þeir hafa gengið á vegi Kains og hrapað í villu Bíleams fyrir ávinnings sakir og tortímst í þverúð Kóra.
12
Þessir menn eru blindsker við kærleiksmáltíðir yðar, er þeir sitja að veislum með yður og háma í sig blygðunarlaust. Þeir eru vatnslaus ský, sem rekast fyrir vindum, tré, sem bera ekki ávöxt að hausti, tvisvar dauð og rifin upp með rótum.
13
Þeir eru ofsalegar hafsbylgjur, sem freyða eigin skömmum, reikandi stjörnur, sem eiga dýpsta myrkur í vændum til eilífðar.
14
Um þessa menn spáði líka Enok, sjöundi maður frá Adam, er hann segir: ,,Sjá, Drottinn er kominn með sínum þúsundum heilagra
15
til að halda dóm yfir öllum og til að sanna alla óguðlega menn seka um öll þau óguðlegu verk, sem þeir hafa drýgt, og um öll þau hörðu orð, sem óguðlegir syndarar hafa talað gegn honum.``
16
Þessir menn eru möglarar, umkvörtunarsamir og lifa eftir girndum sínum. Munnur þeirra mælir ofstopaorð og þeir meta menn eftir hagnaði.
17
En, þér elskaðir, minnist þeirra orða, sem áður hafa töluð verið af postulum Drottins vors Jesú Krists.
18
Þeir sögðu við yður: ,,Á síðasta tíma munu koma spottarar, sem stjórnast af sínum eigin óguðlegu girndum.``
19
Þessir menn eru þeir, sem valda sundrungu, holdlegir menn, sem eigi hafa andann.
20
En þér, elskaðir, byggið yður sjálfa upp í yðar helgustu trú. Biðjið í heilögum anda.
21
Varðveitið sjálfa yður í kærleika Guðs, og bíðið eftir náð Drottins vors Jesú Krists til eilífs lífs.
22
Verið mildir við suma, þá sem eru efablandnir,
23
suma skuluð þér frelsa, með því að hrífa þá út úr eldinum. Og suma skuluð þér vera mildir við með ótta, og hatið jafnvel kyrtilinn, sem flekkaður er af holdinu.
24
En honum, sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögnuði,

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Sammála. Það er hreinlega eins og gefið hafi verið út "veiðileyfi" á kristið fólk, og ef einhver vogar að svara fyrir sig eins og prestarnir sem að kæra fríkirkjuprestinn, þá eru viðkomandi sakaðir um að bjóða ekki hinn vangann. Ég hef hreinlega orðið fyrir því að vera ásökuð um að vera í liði með Bush! Fyrir það að játa Jesú.

Guðrún Sæmundsdóttir, 24.4.2007 kl. 10:52

2 Smámynd: Púkinn

Það sem ergir trýleysingja eins og mig er þegar fólk reynir að troða sínum skoðunum upp á aðra. Því miður einkennirþað marga trúaða að þeir telja það skyldu sína að boða öðrum trú sína - ef fólk vill endilega trúa einhverjum bábiljum má það svosem gera það mín vegna, en ef það ætlar að troða sínum skoðunum upp á mig (hvort sem er með því að banka á dyrnar hjá mér með bæklinga í hendi, með því að ætlast til að kristinfræði sé kennd í skólum eða með því að banna skemmtanir á "helgidögum", þá er mér misboðið.

Púkinn, 24.4.2007 kl. 11:05

3 Smámynd: halkatla

góðan og blessaðann daginn Linda

ég tek bara undir með Skúla Skúlasyni...  en Púkinn er ekki alveg að fatta hvað trúleysi er orðið ofaná, það er orðið normið og við sem erum trúuð og trúum á mátt orðsins erum álitin sérviskupúkar...

halkatla, 24.4.2007 kl. 11:09

4 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Allt er best í hófi í trúmálum sem öðru, fer ekki ofan af því.     Kannski hjálpar það einhverjum að vera alltaf að lesa Biblíuna, ókey þá   Jesú var fínn það er ekki spurning.   María Teresa og fleiri hennar líkar voru kraftaverkakonur.   Mættu vera fleiri Maríur

Þórdís Bára Hannesdóttir, 24.4.2007 kl. 11:22

5 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Af ávöxtunum skulum vér þekkja þá. María Teresa var sannkristin, það var andi Guðs sem að verkaði í henni til að hjálpa fátæklingum, það er líka andi Guðs sem verkar í starfi Þórunnar hjá ABC í Kenía. Sjá nánar abc.is  Hún er að gera frábæra hluti meðal bláfátækra, eins og kom fram í Kompásþættinum á stöð 2. 

Guðrún Sæmundsdóttir, 24.4.2007 kl. 12:41

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heill sé þér og þökk, Linda, fyrir hugrakkan vitnisburð þinn um Jesúm og góða grein sem endar á einu minnsta bréfi Nýja testamentisins, en lærdómsríku. Guð blessi þig fyrir þetta og ykkur hin sem leggja hér inn góð orð.

Jón Valur Jensson, 24.4.2007 kl. 16:07

7 Smámynd: Linda

Vá þakka ykkur kærlega fyrir kærleika ykkar í minn garð, ég bara varð að skrifa þetta,  ég var svo sár eftir sum skrif sem ég hef lesið og hjartað í mér var brostið, ég bað og fann hvernig guð leiddi  mig áfram i  þessum skrifum  Hann á dýrðina en ekki ég.  Takk samt.  

Linda, 24.4.2007 kl. 20:12

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Frábær grein Linda. Guð blessi þig !

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.4.2007 kl. 21:44

9 Smámynd: Högni Hilmisson

Linda. mér þykir öfga vænt um þig og hvernig þú ert einlæg í trúnni. hafðu ekki áhyggjur af guðleysingjum. en biddu fyrir þeim. Guð mun nota þig til góðra verka. haltu áfram í þeim styrkleika sem þú hefur.  það er ekki gott að eiga í orðasenum og þrætum. Ég bið Drottinn að smyrja tunga þína og huga, að þú hafir speki og djörfung, til að tala sannleiksorð og græðsluorð inn í líf þeirra er verða á vegi þínum. Og þú átt yndislega vini á bloginu og vonandi í kirkjunni þinni líka. við elskum þig öll.  Náð sé með þér og friður, alla daga.

Högni Hilmisson, 25.4.2007 kl. 02:22

10 Smámynd: Högni Hilmisson

Linda. mér þykir öfga vænt um þig og hvernig þú ert einlæg í trúnni. hafðu ekki áhyggjur af guðleysingjum. en biddu fyrir þeim. Guð mun nota þig til góðra verka. haltu áfram í þeim styrkleika sem þú hefur.  það er ekki gott að eiga í orðasenum og þrætum. Ég bið Drottinn að smyrja tunga þína og huga, að þú hafir speki og djörfung, til að tala sannleiksorð og græðsluorð inn í líf þeirra er verða á vegi þínum. Og þú átt yndislega vini á bloginu og vonandi í kirkjunni þinni líka. við elskum þig öll.  Náð sé með þér og friður, alla daga.

Högni Hilmisson, 25.4.2007 kl. 02:23

11 Smámynd: Högni Hilmisson

Linda. mér þykir öfga vænt um þig og hvernig þú ert einlæg í trúnni. hafðu ekki áhyggjur af guðleysingjum. en biddu fyrir þeim. Guð mun nota þig til góðra verka. haltu áfram í þeim styrkleika sem þú hefur.  það er ekki gott að eiga í orðasenum og þrætum. Ég bið Drottinn að smyrja tunga þína og huga, að þú hafir speki og djörfung, til að tala sannleiksorð og græðsluorð inn í líf þeirra er verða á vegi þínum. Og þú átt yndislega vini á bloginu og vonandi í kirkjunni þinni líka. við elskum þig öll.  Náð sé með þér og friður, alla daga.

Högni Hilmisson, 25.4.2007 kl. 03:28

12 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Allt er þegar þrennt er Högni.  En ég tek undir þín orð og bið þig blessunar ásamt Lindu. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 25.4.2007 kl. 08:21

13 Smámynd: Linda

Vá, takk fyrir Högni ég bara fæ ekki lýst hversu mikið orð þín hrifu mig. .

Takk Haukur.

Linda, 25.4.2007 kl. 17:44

14 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Hæ Linda mín, ég hef oft grátið undan fólki sem segir hræðilega hluti við mig  persónulega og á netinu  vegna frelsarans.  Og eins og Högni segir þá bið ég fyrir þeim, en ég játa að það er oft erfitt að byrja bænina, en svo leiðir Guð mann áfram, og gefur manni það að fyrirgefa sem er svo stórkostlegt og algjörlega útúr öllum mannlegum karakter. Mér finnst þið kristnu bloggvinirnir algjör Guðsgjöf, og við skulum standa saman, og biðja fyrir hvort öðru, og halda áfram að vera salt og ljós í Jesú nafni.

Guðrún Sæmundsdóttir, 25.4.2007 kl. 19:33

15 Smámynd: Linda

Takk kærlega Guðrún mín, ég bið þér blessunar í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.

Linda, 25.4.2007 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband