Andaðu - Margmiðlunarefni

Ég á varla orð yfir eftirfarandi efni, ég var svo snortin, ég vildi deila þessu með ykkur, og ég vona að þið njótið að hlusta á þennan mann eins mikið og ég, hann heitir Rob Bell, efnið hér fyrir neðan er í tveimur 7 mínútna hlutum, vefsíða Robs er . 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

Ég veit að það er svo margt þarna úti sem ber að varast, en það er eitthvað heilt við þennan, hvað finnst ykkur? 

knús.

Linda, 29.4.2008 kl. 01:19

2 Smámynd: Linda

Ok, búin að skoða meira, það verður að segjast eins og er að Rob Bell tilheyrir því sem er kallað "Emergent Church" þessi hreyfing tengist mjög svo Universalism, Rick Waren er einn af þeim sem er skikkaðir undir þennan hatt, ja hérna hér.  í hvern fótinn að stíga  Sumir hér mundi nota orðið "Gelding" á ritningunni smella hér til að heyra viðtal við John Macarthur sem er mesti andstæðingur t.d. Hvítasunnuhreyfingarinnar, Emergent Church  og þeirra sem predika velmegunar gospelin, "Dæs" (ég skil velmegunar gospelin, algjört eitur) en Hvítasunnu hreyfingunni, ja hérna hér.

Ok svo hver er niðurstaðan, engin að svo stöddu, sannreyna allt með ritnigunni er eina svarið. 

Ég verð að segja eins og er að Rob Bell hreyfði við mér, en maður þarf ekki að vera sammála öllu  eða samþyggja allt, enn og aftur nota heilan og finna svörin í ritningunni.

Setti hin hér til hægri hlekk á nýjustu bók John MacArthur fyrir þá sem vilja lesa um hans skoðun.  Hringið í Nexus ef þið ætlið að panta hana, mun fljótara en að fara í gegnum Amazon eða bókaforlögin stóru.

Knús.

Linda, 29.4.2008 kl. 03:01

3 Smámynd: Linda

Jæja, eins og þið sjáið þá er ég enn að pæla og lesa. Var að lesa mig til um Emergent Church, fyrir mér er þetta eins og Lúther og Kaþólska Kirkjan á sínum tíma.  Í dag má segja að hin almenna Evangelíska Kirkja sé á móti Emergent Chruch og því sem þar er boðað.  Emergent Chruch er ekki einu sinni Kirkja sem slík, þetta er frekar hreyfing, þeir sjálfir vilja ekki kannast við að EC sé hreyfing, EC mun vera hugsuð sem andstæða við hina föstu trúarhefð eins og Lútherska, Calvíniska, Kaþólska o.s.f.v. þetta á sem sagt ekki að vera skipulagt trúarbragð. Ekkert að því finnst mér. Nú EC sækist t.d. í Quaker hugsjón bara svo dæmi sé tekið, sérfræðingar vilja meina að EC sé á réttri braut en þurfi samt að fara sækja meira í frumkristni til að ná fullu jafnvægi. Hver veit. En hér er þráður um þessa "hreyfingu" og svo er hér viðtal við einn sérfræðing, mjög fróðlegt.

Niðurstaðan mín er því þessi, ekkert að óttast við Emergent Church, hún er ennþá ófáguð og það er kannski það sem gerir þessa "hreyfingu" heillandi, nú er spurning hvort þessi "hreyfing" mun ná að sækja í rótina og ná því að vera á réttritbraut, tíminn mun leiða það í ljós.

Þetta er það sem ég hef komist að, eins og staðan er í þessum skrifuðum orðum.

Linda, 29.4.2008 kl. 04:17

4 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Það verður gaman að sjá vínkilinn á umræðum hér ef einhverjar verða.Rob setur fram flotta þeríu um guð og sjá hversu afslappaður hann er.

Ég vil meina að flest okkar fari í vissa leit á æfinni,og þessi leit er að mestu sú að finna frið í hjarta og sálu.Og ef tekst í þessari leit að finna guð sem jú er í okkur sjálfum,þá auðvitað förum við að skynja að ekki er allt sem sýnist.

Ég hafði gaman af svona í morgun sárið að skoða þessi myndbönd og jú þau fengu mig til að hugsa.Og þar með varðandi mig hafa þau hitt í mark.Svo er bara að muna að anda.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 29.4.2008 kl. 07:17

5 Smámynd: Mofi

Fínt video og ekkert að því sem ég heyrði þarna.  Að vísu í fljótu bragði var erfitt að sjá hvað hann trúir svo ég get ekki tjáð mig um það. Veistu hverju hann Rob Bell trúir?

Mofi, 29.4.2008 kl. 10:56

6 Smámynd: Linda

Sæll Úlli minn ´- Já einmitt þetta fékk mig til að hugsa pæla.

Hæ Mófs - Einmitt, ég er búin að lesa mig til um þetta, hvað er sagt eins og einn vill beina að Emergent Chruch eins og þessir aðilar falla undir er mjög líkt Universalism, en, þegar betur er að gáð, þá er það ekki rétt, því þeir eru einfaldlega á því að það sé ein leið. Svo með því að smella hér getur þú fræst um mission statement hjá þeim sem segir m.a eftirfarandi.

Living out the way of Jesus"

Faith is action, and we seek to act on our beliefs passionately, following Jesus and being for others the embodiment of his love and truth.

"In missional communities"

We gather in communities of support to heal, pray and serve, to care for and learn from one another, and to experience life together

Staðreyndin er sú að við verðum að skoða allt sem predikarar segja út frá ritningunni og sjá hvort slíkt þoli grand skoðun.

KNús

Linda, 29.4.2008 kl. 15:25

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir þetta Linda, ég segi eins og Dóri, það var erfitt að átta sig á þessum Rob Bell, en þú ert búinn að vísa í heimild um hans söfnuð og skoða ég það.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 29.4.2008 kl. 19:42

8 Smámynd: Linda

já en hvað fannst þér um það sem hann sagði, hreyfði það ekki við einhverju inn í þér, ég fann bara hvernig ég náði ...ég get ekki sett það í orð en, mér leið rosalega vel eftir að hafa hlustað á þetta í næði.   Andaði djúpt eins og hann talaði um og íhugaði orðin hans, Vá!

knús

Linda, 29.4.2008 kl. 20:32

9 Smámynd: halkatla

er eitthvað við hann? JÁ

Karítas kom meiraðsegja hingað til að hlusta með mér og ég held að það væri gaman að djamma með þessum predikara, það er ekki hægt að segja það um marga svoleiðis

mér fannst hann bara nota biblíuleg rök og koma inná ansi skemmtilega hluti sem ég ætla að pæla meira í. Takk fyrir að kynna þetta fyrir okkur

halkatla, 30.4.2008 kl. 09:39

10 Smámynd: Linda

Óh vá takk Anna, það er einmitt sem mér finnst, ég er búin að horfa á "andaðu" oftar en einu sinni og ég elska tilfinninguna sem það gefur mér.    Það gleður mig að hafa kynnt hann fyrir ykkur.  Ég var svo spennt að sjá þín viðbrögð, þau eru eins og mín, Vá.

Knús

Linda, 30.4.2008 kl. 15:24

11 Smámynd: Linda

Mófi skrifar þesa spurningu við aðra færslu, set  hana inn hér og svara svo.

Hvernig er þessi bók hans John MacArthurs?  Þegar hann talar á móti "náðargjafar" hreyfingunni er það þá ekki svona "pentacostal" eins og ég held að blogg vinur okkar Haukur er?

Mofi, 30.4.2008 kl. 08:35

 hann virðist hafa mjög stranga túlkun ritningunni og les úr henni að allt slíkt sé rangt af því ég hef komist af, hann talar gegn náðargjafahreyfingu og hvítasunnukirkjunni, þá talar hann gegn öllum lifandi söfnuðum í leiðinni, eins og t.d. Haukur sækir, sem og ég, þó ég sé ennþá skráð í Lútersku kirkjuna.  Ég ætla að athuga hvort ég finni þessa bók á bókasafninu.  Það væri fróðlegt að sjá hans "öfga" rök, fljótt á litið virðist hann vera öfgamaður gegn hinni lifandi kirkju...það fólk getur verið svo þreytandi og þröngsýnt.

En það var talað gegn Lúther og hann var talinn vaða í villu, svo það er mikilvægt að maður átti sig því hvað hann er að segja áður en maður útilokar það sem hann hefur að segja. Ég mein Lúterska Kirkjan er til enn í dag, þrátt fyrir þá aðför sem Kaþólska kirkjan veitti henni.

knús

Linda, 30.4.2008 kl. 15:38

12 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Þessi ætti nú bara að fara út að labba hér í Rvk Íslandi. Maður fyllist allur af lofti og tekst nánast á flug bara við það að labba smá, rokið er svo mikið og ferska loftið gífurlegt.

Samt gott mál. Ég finn það þegar ég hef setið lengi að ég anda alls ekki rétt.

Bryndís Böðvarsdóttir, 30.4.2008 kl. 16:14

13 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Flott þetta með nafn Guðs YHWH - Það er svo mikið blásturshljóð í því. Manni líður eins og maður sé aðallega að anda nafn Guðs út þegar maður segir það. Eins og þegar maður andvarpar til hans í bæn.

Bryndís Böðvarsdóttir, 30.4.2008 kl. 16:22

14 Smámynd: Linda

Hæ Bryndis mín, (svar við fyrstu ath) en krútt það eru ekki allir mikil písl eins og þú hehah (svar við 2 ath) já nákvæmlega, mér þótti hann yndislegur og ég fæ ekki frá orðum hans sé ekki í orðinu, hann virðist einfaldlega elska orðið, það lýs úr orðum hans og sannfæringu.  Ætla að horfa aftur.

fyrir þá sem skilja ekki þegar við tölum um orðið, þá er átt við að það sé bæði hið skrifaða orð og hið lifandi orð sem er Jesú Drottinn okkar og frelsari.

Linda, 30.4.2008 kl. 16:30

15 Smámynd: Mofi

Ég á John MacArthur study Bible og finnst hún mjög góð. Þekki að vísu ekki vel til hans sjálfs og hans trúarskoðanna.  Ég skil hann vel að vera á móti náðargjafa hreyfingunni og þess háttar. Söfnuðir geta verið lifandi án þess að flippa út eins og maður upplifir marga af náðargjafa söfnuðunum.

Kannski kominn tími til að....hmm, taka sérhvern af kristun söfnuðunum fyrir og gagnrýna þá  :/   ætti að vera hægt að gera það á góðum nótum, að við ættum að reyna öll að vera að vaxa í sannleika.  Svakalega finnst mér eins og þannig yrði ekki vel tekið...

Mofi, 30.4.2008 kl. 16:41

16 Smámynd: halkatla

Kannski kominn tími til að....hmm, taka sérhvern af kristun söfnuðunum fyrir og gagnrýna þá  :/   ætti að vera hægt að gera það á góðum nótum, að við ættum að reyna öll að vera að vaxa í sannleika.  Svakalega finnst mér eins og þannig yrði ekki vel tekið...

Mofi, ég held að það myndi aldrei ganga, því miður, því yrði sko ekki vel tekið.

halkatla, 30.4.2008 kl. 16:54

17 Smámynd: Linda

sammála Önnu, enda er fólk hér á vefnum sem lifir og hrærist í því að gagnrýna góða söfnuði hér á landi, án þess að vita um hvað málið snýst.  Svo neib, mundi ekki ganga.

kv.

Linda, 30.4.2008 kl. 17:00

18 Smámynd: Jóhann Helgason

 Hæ Linda það var æðislegt vá svo nálagt frumkristinni þetta með nafn Guðs  er svo rétt  það er borið fram sem Yud-Heh-Vav-Heh  gyðingar bera það fram þannig  Nafn Guðs löðurs . Vá ég verð að heyra meira frá honum hann er æðislegur """" andaðu" oftar en einu sinni og ég elska tilfinninguna sem það gefur manni. 'Eg vill heyra meira takk kærlega Linda að kynna okkur fyrir honum Rob Bell .

Æðislegt """ 

Jóhann Helgason, 1.5.2008 kl. 14:31

19 Smámynd: Linda

Frábært Jói minn að þú hafir notið þess að horfa á þetta með Rob, ég mun koma með meira efni sjálfsagt um helgina.

knús

Linda, 1.5.2008 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband