Það verður að segjast eins og er

að fólkið í London er ekki sátt við ástandið þar á bæ, og hver mundi  vera það,  hvernig ætli það sé að búa í stöðugum ótta að vita með fullri vissu að innan samfélagsins sem byggir þessa borg eru aðilar sem gera út á það að hata og eyðileggja, myrða og særa  í sínum svörtustu hugsunum.  Svo eru það þeir sem vinna i því að gera allt þetta að raunveruleika.  Íslamsistar eru á bak við þetta, og ég skil það vel að stjórnvöld geta ekki gert annað enn að taka þessu alvaralega. 

Ég var frekar hissa þegar ég les sum blogg og þeir sem þar skrifa gera lítið úr ótta þjóðfélagsins og í sumum tilfellum segja að þetta sé bara tilbúningur og það sé ekki nein hætta á ferð.  Í heimi samsæriskenningamanna er heimur Íslams saklaust sem lamb, það er merkilegt alveg hvað fólk er með frjótt ímyndunarafl, eða kannski gjörsamlega veruleikafyrt?. 

 


mbl.is Bresk yfirvöld telja hryðjuverk yfirvofandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Sammála þér með þetta Linda. Kalla einmitt eftir umræðu um þessi mál í blogginu hjá mér í dag og gott að sjá fleiri á sömu línu!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.7.2007 kl. 14:57

2 Smámynd: Linda

Ágæti Jón, farðu nú aðeins að læra um Íslam.  þá gætur þú komið með betri rök fyrir þínu máli enn að úthúða Kristni trú, sem á ekkert sameiginlegt með Íslam hvorki trúarlega eða sögulega.  Enn það þýðir ekkert að neita því, Múslímar og Íslam eru þeir aðilar sem eru í dag viðriðnir flest hryðjuverk í heiminum í dag.  Það þýðir ekki að allir Múslímar séu hryðjuverkamenn, þvert á móti.  Hinsvegar verður það bara að segjast eins og er, á meðan "flestir"Múslímar þegja yfir ofbeldi sem er gert í nafni trúarinnar fá "flestir Múslímar á sig óorð vegna  fárra ofbeldis manni.  Ég er ekki að segja að það sé rétt, heldur þannig er það nú bara.

Linda, 1.7.2007 kl. 20:21

3 Smámynd: Linda

Jón Grétar, ekki snúa út úr ég sagði "flest" hryðjuverk í dag er framkvæmd af Múslimum, ég sagði flest ekki öll.  Þín skoðun er á Biblíunni  og Qur'an er þín.  Skúli hatar ekki Íslam, hann kemur með staðreyndir sem þér líkar ekki.  Þannig er það oftast þegar sannleikurinn er lagður fyrir þá sem hafa trúað lygi, hann ergir mann.

Linda, 1.7.2007 kl. 20:59

4 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Er fólk virkilega enn að kenna og tengja heiðarlega múslima við glæpamenn sem eru að fremja hryðjuverk. Þvílík og önnur eins þröngsýni og fáviska

Þórdís Bára Hannesdóttir, 1.7.2007 kl. 21:14

5 Smámynd: Linda

nei Bára það er engin að tengja heiðarlega eða hógværa Múslima við hryðjuverk.  það er út úr snúningur.

Linda, 1.7.2007 kl. 21:38

6 Smámynd: Linda

Nei ég kaus ekki að sleppa því að muna það, eins og þú segir, heldur er ég ekki að flækja umræðuna með efni sem kemur henni ekki við.  Á síðustu 20 árum hafa felst hryðjuverk verið framin af Íslamistum. Eða þarf að minna þig á Lockerbie m.a.  Ég segi aftur " Það þýðir ekki að allir Múslímar séu hryðjuverkamenn, þvert á móti.  Hinsvegar verður það bara að segjast eins og er, á meðan "flestir"Múslímar þegja yfir ofbeldi sem er gert í nafni trúarinnar fá "flestir Múslímar á sig óorð vegna  fárra ofbeldis manna."

Lestu Nýja Testamentið, til þess að læra um Guð Biblíunnar. 

Linda, 1.7.2007 kl. 21:44

7 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Er þá ekki réttara að segja ,,glæpamenn sem nota Íslam til að réttlæta glæpinn'' það er líka gert í nafni Krists og var gert  í gegnum aldirnar. Kemur samt Kristi ekkert við.   Þá verður ekki þessi misskilningur.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 1.7.2007 kl. 22:01

8 Smámynd: Linda

Nei þessir menn nota Íslam vegna þess sem stendur í Qur'an til að réttlæta gjörðir sínar.  Því miður er það rétt hjá skúla Qur'an boðar ofbeldi og því miður vegna þess að við erum ekki Íslams trúrrar þá erum við eða vantrúuðu réttlætanlega sek um trúvillu og því réttdræp.  Íslam er skipt upp í Medina og Mekka tímabil, það er munur á boðskap Muahamads í þessum kafla skiptu Qur'ansins, það sem öfga menn fara eftir í dag er meira og minna það sem er í seinni hluta Qur'ansins. 

Það er rétt að það hefur verið ofbeldi unnið vegna Kristinar trúar, enn hvergi í Kristinni trú er okkur boðað að drepa annan, því eru það mennirnir sem eru sekir um að nota ofbeldi í Kristinni trú, ekki trúin sjálf.  Það er ekki hægt að segja um Íslam.

Linda, 1.7.2007 kl. 22:27

9 Smámynd: Linda

Þeir sem teljast til hófsamar trúar í Islam eru hliðhollir þeim hluta Qur'ansins sem var skrifaður í Mekka ´, ef ég man  frekar enn Medinu. Allt fólk er gott þangað til að annað er sannað. Vitanlega á þetta við Íslams trúar líka

Linda, 1.7.2007 kl. 22:30

10 Smámynd: Linda

Jón þú hefur þín skoðun  og gamla testamentið er ekki úrelt, heldur er skilningur manna á GT úreltur, þeir gera ekki greina mun á því sem er sagnfræðilegt, sögulegt eða dæmisögur, svo ekki gleymast spádómsbækurnar.  Það eru menn sem nota GT sem ástæða til þess að réttlæta ljóta hluti. Vissulega eru til menn sem snúa út úr ritningunni í sína þágu til þess að reina sanna ranglæti orða eða gjörða sinna enn það þýðir ekki að þeir fari með rétt mál.  Hinsvegar er ekki hægt að nota Jesú til þess að réttlæta morða eða önnur  ódæði gagnvart náunganum.  þeir sem fullyrða slíkt sína einungis sína eigin vankunnáttu á orðum Jesú. 

Það sam er ekki hægt að segja um Qur'an, þar er fyllilega réttlætanlegt að myrða og nauðga, ljúga og stela svo framarlega að það sé gert þeim sem eru vantrúaðir eða villitrúar, eins og Kristnir, Gyðingar og trúlausir. 

Linda, 1.7.2007 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband