28.6.2007 | 21:58
Æi litla ljósið hann Lúkas
hvernig fólk gerir svona hlut. Þegar ég les um þetta atvik þá rís upp í mér því lík bræði að ég sé rautt, þetta eru sömu viðbrögð ég fæ þegar barni er misþyrmt, þegar þau saklausu verða fyrir barðinu á svívirðilegu liði þá finn ég hvernig sál mín skríður saman og reiðinn nær nánast heljartökum á mér.
Enn núna kveðjum við Lúkas og öll dýr sem hafa orðið fyrir barðinu á svívirðulegu fólki og leggjumst á eytt um að koma þessum aðilum sem eiga sök á þessu til lögreglu og dómstóla strax. Ef einhver veit hverjir voru að verki að þessu ódæði, gerið það sem rétt er og látið vita.
Til eiganda Lúkasar, ég veit hversu sárt það er að missa góðan félaga og ég votta þér alla mína samúð.
![]() |
Hundrað manns á kertavöku til minningar um hundinn Lúkas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.6.2007 | 02:32
Downs einkenni og fóstureyðing
Þetta efni hefur verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Góðum blogg vini mínum fannst ég ekki vera nægilega staðföst í trúnni þar sem ég hef ekki hreina afstöðu gegn því að downs fóstrum sé eytt.
Ég sagði eftirfarandi:
Ég get ekki dæmt þær konur sem hafa farið í fóstureyðingu út af því að fóstrið var eða er með Downs. Við vitum ekki aðstæður þeirra. Umræðan er góð enn engin veit hver sín afstaða verður til málsins fyrr enn sú sama gengur í þeim sporum sem aðrar konur hafa gengið á undan þegar kemur að Downs spurningunni.
Bloggvini mínum hafði þetta að segja um mitt svar:
Sæl, LindaEinarsdóttir, ég heilsa þér, kristna sál, en lízt ekki nógu vel á staðfestuleysið sem birtist í innleggi þínu kl. 20.41. Viltu ekki hugsa þetta lengur og betur í ljósi trúar þinnar? Hefði t.d. verið rétt fyrir Maríu mey að láta framkvæma á sér fósturdeyðingu
Málið er ekki svo einfalt fyrir mér, ég vildi að svo væri, sakir trúar minnar. Mín afstaða til fóstureyðingar er almennt "á móti" enn ég játa það með fullri hreinskilni að það eru frávik í þessu hjá mér. Þau eru 1. vegna nauðgunar 2. vegna sifjaspjalls 3. lífshætta fyrir móður.
Ég skrifa þetta ekki auðveldlega ég tek það fram, ég sá myndina "silent scream" sem situr enn á sálu minni, ég hef aldrei náð mér eftir þann atburð. Ég hef aldrei náð mér eftir að hafa séð heimildarmynd um "partial birth fóstureyðingar". Núna hefur trú mín verið kölluð fyrir dóm ef svo má að orði komast og ég verð að reyna að svara fyrir mig eftir bestu getu og af einlægni.
Hvað með Downs fóstrin, hver er mín afstaða til þeirra? Svo ég ætla að reyna að setja mig í spor þeirra kvenna sem þurfa að taka ákvörðun um áframhaldið á óléttu eftir að þær fá fréttir um að þær beri Downs fóstur undir belti.
Hvað mundi ég gera? Ef ég fengi þær fréttir að ég ætti von á downs barni.
Ég sit hér nú hálf frosin af skelfingu við það að þurfa svara þessu, "hvað mundi ég gera" hendur mínar hanga yfir lyklaborði tölvunnar sí og æ og orðin koma hægt í ljós, ég reyni hvað sem ég get til þess að skrifa, ég ætla að eiga barnið, því fóstureyðing er ekki raunhæfur kostur fyrir mig sökum trúar. Enn, og það er stórt og erfitt "enn" ég er nokkuð viss um að ég mundi kjósa fóstureyðingu, ástæðan er margþætt og mjög persónuleg eins og flestar fóstureyðingar eru og ég finn til sorgar í þessum skrifuðum orðum og eru tilfinningarnar þungbærar og margþættar fyrir vikið.
Ef það er svona hræðilega erfitt að skrifa um skáldaða ákvörðun, hversu hræðilegri er sá ótti sem hver verðandi móðir yfir 35 þarf að hugsa um, ef hún velur að fara í prófið sem mun skera út um það hvort barnið hennar er laust við Downs litninginn.
Því verð ég að standa við mín orð "Við vitum ekki aðstæður þeirra. Umræðan er góð enn engin veit hver sín afstaða verður til málsins fyrr enn sú sama gengur í þeim sporum sem aðrar konur hafa gengið á undan þegar kemur að Downs spurningunni."
Er trú mín því orðin að engu, er ég ekki lengur verðug að leita Jesú, sakir þess að eins og staðan er í dag þá er þetta mín afstaða. Nei, ég trúi því ekki, ég hef verið hreinskilin og ég hef hugsað þetta út frá mínu lífi eins og það er í dag. Ég endurtek eins og aðstæður eru í lífi mínu í dag.
Ég ber mikla virðingu fyrir bloggvini mínum og hans trú, og ég veit að oft fara hans skrif fyrir hjartað á mörgum, enn staðfesta hans er virðingar verð og ég veit að hvað hann átti við með sínu svari til mín, það var hinsvegar búið að loka fyrir frekari athugasemdir hjá honum og því tek ég tíma og svara eftir bestu getu hér.
Sem kona get ég ekki sagt "aldrei" þegar um fóstureyðingu er að ræða. Sem kona get ég hinsvegar sagt "aldrei of auðveldlega" og "aldrei sjálfsagt".
Umrædd tilvitnun er hægt að lesa í athugasemdum á grein hér. Að öðru leiti mun ég ekki nafngreina bloggvin vegna virðingu við hann.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.6.2007 | 21:55
Er hægt að treysta Abbas?

![]() |
Vopnaburður bannaður á Vesturbakkanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.6.2007 | 18:26
Íslam og Hamas óvinveittir Kristnum á Gaza svæðinu
Í viðtali við worldnetDaily, Sheikh Abu Saqer, leiðtogi hópsins Jihadia Salafiyja, sagði að Múslímar á Gaza svæðinu ætluðust til þess að Kristnir nágranar þeirra hefðu það á hreinu að Hamas stjórn þýddi að mikilvægar breytingar væru í nánd. Þeir (Kristnir) þurfa að vera tilbúnir til þess að búa við Íslamska stjórn ef þeir vildu halda áfram að búa á Gaza svæðinu.
Trúboðs iðkunn mun ekki lengur vera leyfð, og þeir sem eru grunaðir um að slíkt þar á meðal að boða trúskipti frá Íslam yfir í Kristna trú, ættu von á skelfilegum afleiðingum og refsingum sagði Abu Saqer. Auk þess verður líka stranglega bannað að neita áfengis á Gaza svæðinu, það stendur til að loka internet kaffihúsum og billjard stöðum auk þess munu allar konur þurfa að klæðast fötum sem hylja líkama að fullu þegar þær eru á almanna færi.
Til þess að vera fullviss um að farið sé eftir þessum reglum, hefur að sögn Abu Saqer, verið lögð drög að nýju herliðið sem mun fylgjast með öllum þegnum svæðisins og reglum þess.
Eftir hræðilega árás á Kristna kirkju og skóla í Gaza borg, eru flestir (Kristnir)óvissir um hvort að það verði þeim nokkuð til sældar að gerast undirgefin hinu nýja öfga íhaldi múslímskra yfirmanna, hvort að raunverlegur friður og öryggi mun verða að veruleika fyrir þetta litla Kristna samfélag.
Heimildir Israel today og World Net Daily
Trúmál og siðferði | Breytt 20.2.2008 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.6.2007 | 18:51
Elliðár skarta sínu fegursta núna.
Móðir mín dreif mig í smá göngu í dag, og stefndu veið beina leið í Elliðaárdalinn og mikil lifandi var mikil fegurð þar og friður þegar maður var búin að fjarlægjast umferðaniðinn. Ég tók nokkrar myndir, er sjúk í að taka myndir af blómum og slíku og ætla að setja þær inn. Það er ekki langt fyrir Reykvíkingana að fara til þess að njóta náttúrunnar.
hér er blóm á ferð eins og Lúpína, tísfjóla, þrenningarfjóla, bláklukka (er ekki alveg viss) og blóðberg. Svona er dalurinn fagur í dag. Með því að smella á myndirnar sjáið þið þær stærri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.6.2007 | 01:08
Til hamingju Ísland með þetta!
Ég gæti ekki verið ánægðari með svona frétt. Við verðum að átta okkur á því að þetta er viðbjóður og ekkert annað. Þetta niðurlægir konur, og ekki má gleyma að því að við þetta allt saman, jafnvel hér á Íslandi, loðir orðið kynlífsþrælkun og maður þarf ekki að vera með neitt sérstaklega hátt IQ til þess að vita að við erum ekki saklaus í þeim málum því miður.
Til eru barir í bænum sem eru með kampavín og fínheiti og auðvitað konur til þessa að tala við, þær fá víst borgað fyrir spjallið, hvað verður um þá staði. Já það er vandlifað að vera karlmaður(sumir) í dag
![]() |
Einkadansinn líður undir lok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.6.2007 | 17:23
Vá segi ég nú bara, þetta er af hinu góða og fín lexía þarna á ferð
Svo vil ég koma smá skilaboðum til þeirra ökumanna sem flauta á mig þegar ég keyri á löglegum hraða segðu bara takk og gerðu það sama. Eitt til viðbótar til þeirra sem keyra ofan í rassinum á manni !X$X=$:X)"=X:")X;"= þar sem ég legg það ekki í vana að blóta verðið þið að lesa úr þessu það sem þið viljið.
Svo í lokin vil ég senda ykkur þessa kveðju sem fara í ferðalög um helgina.
Bæn bílstjórans | ||
Drottinn lát ferð mína heppnast Losa mig við þá blekkingu, að það sé allt undir mér einum komið. Vertu mér hjálpsamur á veginum og veit mér þá hugarró, sem veitir mest öryggi, ef háska ber að höndum. Vak þú yfir því að ég stofni ekki til óþarfa áhættu! Gef að ég geti verið öðrum bílstjórum til fyrirmyndar, ekki aðeins í því að hlýða umferðarreglunum út í æsar, heldur einnig með því að sýna sérstaka tillitssemi. Drottinn, varðveit mig frá því að binda mig á líkan hátt við bílinn og fortíðarmenn við hjáguði sína, svo ég færi ekki forgengilegum hégóma of dýrar fórnir.. Kenn þú mér að gæta þess að töfrar hraðans geta aldrei orðið sambærilegar við þá hamingjutilfinningu, sem ég nýt þegar ég get að nýju hafið huga minn til himins, eftir að hafa ekið heilum vagni í hlaðið án þess að valda náunganum nokkrum miska. Amen |
![]() |
360 þúsund króna sekt fyrir ofsaakstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2007 | 15:38
Það var mikið
komin tími til að loka þessum stað. Hinsvegar vil ég taka það fram, að herfangelsi eru tja sko engin dans á rósum, að sögn fyrirverandi eignmann vinkonu minnar sem var í landgönguliði Bandaríkjanna, þá væri herfangelsi víti á jörðu, því hér væri að ræða um menn (fangarnir) sem höfðu svikist um herskildu gerst sekir um glæpi innan hersins af ýmsum toga og þeir sem gættu þeirra ef svo má að orðið komast væru mjög óvinveittir og litu á fangana sem verstu skítseyði.
Svo þeir sem fara úr Getmo munu jú hafa betri aðstæður enn ekki mega þeir búast við að farið verður betur með þá, ef þeir verða heppnir þá fá þeir sömu meðferð og BNA x-hermenn og það er ekki neitt rjóma líf. Þó má líta á björtu hliðina og vita að þeir mun alla veganna fá einhver mannréttindi þ.a.s. verða dæmdir fyrir herrétti. Jæja þetta kemur allt í ljós, allt er betra enn Getmo.
![]() |
Líkur á að Guantánamo verði lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2007 | 14:29
Auðvitað...
Búrka er ekkert annað enn tæki kúgunnar og ekkert annað. Ég vona að þessi fatnaður verður gerður ólöglegur hér á landi áður enn svona lagað nær fótfestu. (þetta eru dæmi um mín viðbrögð við þessum fatnaði) á samt ekki von á því að skipta um skoðun fljótlega.
Ég var að lesa blogg þar sem að viðkomandi sagð m.a. að ástæðan fyrir því að okkur þætti óþægilegt og væri í raun illa við Búrkuna væri m.a. vegna þess að þegar við tölum við fólk þá er líkamstjáning eins og t.d. allar handa hreyfingar, bros og margt annað nauðsynlegt til þess að geta tjáð okkur við hvort annað. Að sjá ekki þennan náttúrlega og eðlilega samskiptamáta væri afar óþægileg tilfinning og óeðlileg, hann sagði m.a. sjáið þið simpansana og górillurnar samskipti þeirra ganga út á líkamstjáningu, því er það okkur eðlilegt að vilja sjá andlit og líkama fólks þegar við tölum við það á almanna færi. Hægt er að lesa alla greinina hans hér. það má segja að hans viðhorf er secular varðandi þetta málefni .
Svo má lesa um Búrkuna með því að smella hér, muslimi skrifar þá grein. Þessi aðili segir m.a. að það er engin trúarlega ástæða fyrir þessum fatnaði í Qur 'an og að fólk yrði að gera sér grein fyrir því að Hijab og Búrka eru tveir mismunandi hlutir. Mjög vel skrifuð og fróðleg lesning.
Ég hvet alla þá sem vilja fræðast um þetta að lesa báðar greinar.
![]() |
Má reka konur í búrkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.6.2007 | 00:34
Æi mótmælið heima hjá ykkur oh nei..

![]() |
Mótmæla því að fána Taívans sé flaggað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2007 | 15:04
Kynjakvóta?
Hvað ætli það séu margar konur sem mundu vilja fá vinnuna af því þær eru konur, frekar enn vegna kunnáttu og reynslu bara hæfni yfir höfuð? Ég get ekki ímyndað mér að velmenntuð kona vilji fá vinnu út af kynjakvóta? Það er bara niðurlægjandi að mínu mati.
![]() |
Félagsmálaráðherra útilokar ekki kynjakvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.6.2007 | 21:08
ahahahahahahaahagagahagahagagahaha
Og friðartrúin(kaldhæðni) er enn á ferð. Það á að gefa manninum Aðalstign og voila þá er verða að hóta fleiri hryðjuverkum. Sjúkt, sjúkt, sjúkt.
Það er ekki öll vitleysan eins.
![]() |
Segja aðalstign Rushdies geta leitt til hryðjuverka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Biblian og ritningin
- Bloggar
- Bækur
- dýr
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Íhugun
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Ofsótta kirkjan!
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- þýddar fréttir
- Öfga Íslam
Bloggvinir
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Úlfar Þór Birgisson Aspar
-
halkatla
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Mofi
-
Ruth
-
Flower
-
Helena Leifsdóttir
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Guðni Már Henningsson
-
Birgirsm
-
Árni þór
-
Kristín Ketilsdóttir
-
Theódór Norðkvist
-
G.Helga Ingadóttir
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Ragnheiður Katla Laufdal
-
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
-
Ragnar Kristján Gestsson
-
Unnur Arna Sigurðardóttir
-
Tinna Jónsdóttir
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Morgunstjarnan
-
Stefán Garðarsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Bumba
-
Ólafur Jóhannsson
-
Kristinn Ásgrímsson
-
Jón Valur Jensson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Hörður Finnbogason
-
Sunna Dóra Möller
-
Janus Hafsteinn Engilbertsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Guðmundur Pálsson
-
Jón Hjörleifur Stefánsson
-
Halla Rut
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Adda bloggar
-
Ingibjörg
-
Steingrímur Jón Valgarðsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Mama G
-
Sigríður Jónsdóttir
-
Eiríkur Ingvar Ingvarsson
-
Gestur Halldórsson
-
Högni Hilmisson
-
Magnús V. Skúlason
-
Sævar Einarsson
-
Kristján Björnsson
-
Kristján Magnús Arason
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson
-
Svanur Heiðar Hauksson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Svala Erlendsdóttir
-
Bergþóra Guðmunds
-
Alfreð Símonarson
-
Ingvar Leví Gunnarsson
-
Kjartan Guðmundur Júlíusson.
-
Guðrún Markúsdóttir
-
Alexander Kristófer Gústafsson
-
gudni.is
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Hdora
-
Snorri Bergz
-
Jóhann Hauksson
-
Julie
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Jeremía
-
Gunnar Páll Gunnarsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Huld S. Ringsted
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Nanna Katrín Kristjánsdóttir
-
Björn Heiðdal
-
Gunnar og Jenný
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Bullukolla
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Mótmælum Durban II
-
Baldvin Jónsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Meðvirkill
-
Hilmar Sæberg Ásgeirsson
-
Bwahahaha...
-
Guðjón Baldursson
-
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Magnús Karlsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Valur Arnarson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Lestur til góðs
Hér verða góðar bækur fyrir sálina, eða ég vona það alla vegana.
-
: Face to Face With God (ISBN: 978-1599790701)
Frábært maður með einstakan eiginleika til að koma orði Guðs frá sér á skiljanlegan máta. Einn áhrifamesti safnaðarhriðir í BNA í dag. Hann og Rob Bell eru hið nýja afslappaða andlit trúarinna á Jesú, heitir, svalir og í orðinu.
-
: This Present Darkness and Piercing the Darkness (ISBN: 978-1581342147)
Spennandi skáldsaga um Engla og dímona og baráttu þeirra, dúndur góð lesning, mjög spennandi, Þetta er eitthvað fyrir alla. Sögu þráður tengist litlum bæ og yfirnáttúrulegum atburðurm. -
: The Shack (ISBN: 978-0964729247 )
Stórkostleg bók! Fáum hana til landsins.
Tenglar
áhugaverðar síður
- Biblían á netinu
- Dr. Homa Darabi
- Lindin Kristilegt útvarp
- Brussels Journal Margt fróðlegt að lesa hér.
- RR og uppskriftir hey hún talar mikið enn eldar vel.
- Bíómyndir, leikarar Fyrir þá sem fíla popp og kók í bíó.
- Mogginn þetta er jú mbl blogg
- Bjarmi áhugaverðar greinar
- Honest thinkings ekki fyrir söfnuð pólitíska rétttrúnaðarins.
- Kristni í dag, fréttavefur trúaðra á ensku Fréttavefur með kristnum áherslum
- Ísland Ísrael Ekki fyrir anti-semíta.
- Kross ganga Fréttir og annað í kristilegu samhengi.
- Ert þú góð/ur persóna SPURNINGARLISTI Hmmmmmm
- Íslenska Kristskirkjan Lúthersk fríkirkja. Frábær Presthjón þarna á ferð. Frábær kirkja.
- Vinir Ísraels Biðju Ísrael Friðar
- Barnabas Fund til stuðnings hinni ofsóttu kirkju.
Trúarbrögð
Hér eru allir þræðir sem ég hef skilgreint að tengist trú. Auðveldar að leita eftir þannig efni eftir mig.
- Jerúsalem er borg Gyðinga 20 ára ransókn, staðfestir rétt þeirra.
- Times Square Church-messur Hver mann ekki eftir "Knive and the kross"
- Islam og Jerúsalem á Islam rétt til Jerúsalems?
- Guðfærðilegt efni um mismunandi trúarbrögð td. Religious studys resourses.
- Hlið Zion´s Vegna Gyðinga eigum við arfleið sem er Jesú, það er kominn tími að við segjum Takk Fyrir !
- Biblían - Hebreska með Enskri Þýðingu Líka hægt að hlusta á Hebreska lesningu
- Gríska Nýja testamenttið, Ensku og frumtexta Hér er NT á Grískum texta og enskum
- Hvað er satt og ósatt með ástandið í Israel. Mjög áhugaverð síða. Fyrir þá sem vilja heyra aðra hlið málsins.
- Þræðir eftir mig sem eru trúarlegs eðlis bara kíkið og fléttið.
- Íslam og ofbeldi í sögulegu samhengi. hér er farið yfir þá staðreynd að Íslam hefur sjaldnast verið til friðs.
Önnur Blogg
önnur blogg enn mbl blogg
- Prívat bloggið á msn spaces fréttir af mér persónulega og gjörningum.
- Hermdarverk, skrifandi Skúli Skúlason Hér er tekið á erfiðum flóknum málum bókstafstrúar og öfga innan Íslams.
- Halkatla aka Anna Karen og nýja bloggið!!! Ein af bestu bloggurum okkar á Íslandi
- Jón Valur Jenson á Kirkju.net Hér talar hann um fóstur, fósturvísa sem og önnur viðkvæm málefni samfélagsins.