Fáum Paul heim aftur

Kæru vinir, það eru margir búinir að skrifa um þetta mál, ég ætla ekki að bæta mér inn í þann hóp, nema að því leitinu til að sýna stuðning minn við þetta málefni og hvetja fjólk til þess að skrifa nafn sitt á undirskriftarlista sem er í gangi, einfaldlega með því að smella hér.

Auk þess hvet ég fólk til þess að skrifa persónuleg bréf til BB og ISG, viljið þið fá afrit af einu slíku er hægt að nálgast það hjá mér með því að senda mér tölvupóst, netfangið er í höfundarlýsingu.

 

Frá og með kl 1300 voru komnar rúmar 600 undirskriftir vantar smá upp á, svo höldum áfram látum þetta ganga og náum tilsettu markmiði, það er líf í húfi!!

Snúum Paul Ramses heim signature
goal: 10,000

mbl.is Fjölskyldu fleygt úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er sammála þér Linda.

Sigurður Þórðarson, 4.7.2008 kl. 13:06

2 Smámynd: Linda

Takk Sigurður fyrir innlitið, það er svo mikilvægt að fólk láti heyra í sér, ég vona að þetta beri allt árangur.

vinarkveðja.

Linda, 4.7.2008 kl. 13:11

3 identicon

Engin ástæða til að gera vesen út af þessu.Hann var hér í óleyfi og það á ekki að gefa neinar undanþágur í þessum málum.Og svo sýnist mér að hann sé á leið heim.Til Kenýa

sigurbjörn (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 13:47

4 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ég lenti í tómu veseni við að reyna skrifa undir þennann lista.Það liggur við að það þurfi bankanúmerið líka svo hægt sé að styðja þetta mál?

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 4.7.2008 kl. 16:51

5 Smámynd: Linda

Hæ Úlli minn, bara skrá nafn og setja punkta í heimilisfang með xxx,  velja síðan Ísland, oh já ekki gleyma að ská netfang :)  svo er hitt bara mjög einfalt.  Allir geta.

knús

Linda, 4.7.2008 kl. 17:36

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Linda mín.

Búin að setja tengil yfir til þín og vona að fólk komi og lesi pistilinn þinn vegna þessa hræðilega máls.

Þetta er alvarlegt mál og minnir mig á atburði sem gerðust hér á fjórða og fimmta áratug sl. aldar er stjórnvöld sendu Gyðinga úr landi til Þýskalands og þar enduðu sumir þeirra í Útrýmingarbúðum Nasista.

Hvar er kristni kærleikurinn. á sama tíma og það er verið að undirbúa að fólk frá Palestínu flytji hingað þá er manni frá Afríku vísað frá landinu. Komið heim til hans í skjóli nætur og hann handtekinn. Komið fram við hann eins og harðsvíraðan glæpamann. Fjórir lögreglumenn fylgdu honum hvert fótmál og fylgdu honum úr landi. Nógir peningar handa lögreglunni frá Birni Bjarnasyni í þetta verkefni á meðan alltaf er verið að spara við hefðbundin verkefni lögreglumanna.

Guð blessi þig og varðveiti.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.7.2008 kl. 18:50

7 Smámynd: Linda

Sæl Rósa mín takk innilega fyrir, og þakka þér fína athugasemd.

knús

Linda, 4.7.2008 kl. 21:39

8 Smámynd: halkatla

ég er búin að gera allt sem í boði er, annars væri ég til í svo miklu meira einsog að taka grát og kveinstafi uppá spólu og senda Birni Bjarnasyni, það gæti virkað en er kannski fullgróft. Þingmenn ættu að drattast til þess að panta flug fyrir hann aftur hingað og hóta Hauki Guðmunds öllu illu nema hann snúi ákvörðuninni við í hvelli með einhverjum lagaundanskotabókstaf. Vinir Pauls gætu borgað fyrir flugið og þannig eyðileggst helgin ekki alveg. Það er ótrúlegt að fólk, allir þingmenn, sé ekki búið að fara frammá afsögn dómsmálaráðherra fyrir þetta. Mér finnst þetta jaðra við stríðsglæp. BB hefur element ættbálkahöfðingjans, ekki hins miskunnsama samverja. Það sannast t.d með því að hann verji þennan demóníska Hauk forstjóra. DRATTIST Á LAPPIR RÁÐHERRAFÍFL!

en að öðru: 

og góða nótt.

halkatla, 5.7.2008 kl. 00:47

9 Smámynd: Linda

Sæl Anna mín ég sé að þú ert búin að úthugsa þetta eins og við hin, og það er alveg á hreinu að hér er um að ræða grjóf mannréttindabrot, ég á ekki von á því að við fáum Paul heim, ekki miðað við þessa ríkisstjórn og þeirra ákvörðunnar tökur upp á síðkastið.  Ég á eftir að glugga í mbl á vefnum og sjá hvort að það sé eitthvað nýtt að frétta, svo kemur þetta þá bara í ljós.

knús

Linda, 5.7.2008 kl. 11:54

10 identicon

Búin að skrifa undir og fór og mótmælti.Nú er að biðja fyrir fjölskyldunni

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.7.2008 kl. 12:25

11 Smámynd: Linda

Æðislegt Birna mín, takk fyrir innlitið

Linda, 5.7.2008 kl. 13:59

12 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Glitter Graphics

Weekend Glitter

Sæl Linda mín.

Góða helgi og Guðs blessun.

Treystum Drottni því hann er góður. Ég trúi því að við fáum farsælan endir með Paul og fjölskyldu.

Höldum áfram að biðja fyrir þeim.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.7.2008 kl. 18:04

13 identicon

Sæl Linda mín.

Allt er þetta sorglegt frá byrjun  og það sem komið er, en við skulum biðja fyrir honum og fjölskyldu hans,

Ég er búinn að skrá mig á listann,þá voru komnir rúmlega 930,eitthvað um það bil.

Sjáumst.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 02:04

14 Smámynd: Óskar Arnórsson

Búin að skrifa mig á listan Linda! Eru margir listar í gangi!  Ég lenti líka í vandræðum enn svo kom e-mail sem staðfesti að ég hef líklegast hitt á að gera þetta rétt.

Þú veist að Svíar gerðu nákvæmlega sömu mistök með einn frá Lybíu og var hann pyntaður og tekin af lífi þegar hann kom þangað. það er svoleiðis reiðialda í Svíþjóð núna að lögin verða endurskoðuð í sambandi við flóttamenn.

Síðan eru stuðningmenn útvísunar "áhugaverðar" persónur. Það eru margir búnir að koma upp um sig á blogginu síðustu daga hvernig þeir eru raunverulega innréttaðir.

Eiginlega ætti að búa til "svartan lista" yfir þetta fólk. Ef þú nennir að gera svona lista, settu Björn Bjarnason og Hauk Guðmundsson efst á listan. Ég skal bæta við hann þegar ég kem til Svíþjóðar.

Er að pakka og hef ekki tíma í þetta núna. Ég ætla að biðja fyrir þessum manni og þakka honum fyrir að hafa sorterað fyrir mig fólk sem er gott og það fólk sem er illt.

Alltaf gott að vita hver er hvað.. 

Óskar Arnórsson, 6.7.2008 kl. 06:45

15 Smámynd: Óskar Arnórsson

Gleymdi að þakka Önnu Karen fyrir frábært komment! Algjörlega í mínum anda. Ég ætla bara ekki að segja það sem fer í gegn um minn huga.

Það er ekki prenthæft og er ég ekki þekktur fyrir að vera feimin við að skrifa það sem mér sýnist til hvers sem er og hvar sem er.

Er það nokkur furða þó Björn sé komin með alla Víkingasveitina sér til  varnar ......ekki veitir honum af....svo hneigir fólk sig fyrir þessu skoffíni í Landakots kirkju á sunnudögum..

Óskar Arnórsson, 6.7.2008 kl. 06:57

16 Smámynd: Linda

Sæll þórarinn, takk fyrir að skrifa undir, núna eru komnar 1200 undirskriftir.

Sæll Óskar, takk fyrir þína athugasemd, sem betur fer hef ég lítið orðið var við fólk sem vill ekki koma þessum manni til hjálpar, nema einn sem skrifar hér.  Málið í Svíþjóð ætti að vera lexia fyrir okkur hér á landi það gefur augaleið að það verður að koma í veg fyrir að maðurinn verður sendur til síns heima, og gefa honum landvistarleyfi hér á landi ásamt konu og barni.

Ég vona að þér gangi rosalega vel í Svíþjóð.  Verður gaman að fylgjast með þér.

 knús

Linda, 6.7.2008 kl. 12:02

17 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sæl Linda! Já ég tek lóklegast allt úr sambandi á þriðjudag og svo verður þetta bara einhvernvegin þar til ég kemst í samband aftur í Svíþjóð.

Ég verð yfirleitt létt reittur til reiði þegar óréttlæti er annars vegar. Ég þarf að passa mig á þessum ham sem ég fer í stundum. Ég er búin að finna 7 manns á blogginu sem er gjörsamlega úr kortinu í þessu máli.

Ég kalla þá "reglugerðar-róna" og eru þetta svipaðir karakterar og þeir sem ráðast á minni máttar, níðast á börnum, berja konur og fara til bestu vina sinna og gorta af afrekum sínum.

Ég þori ekki einu sinni að skrifa hvað mig langar til að gera við þetta fólk.

Alla vega sé og bæði horn og hala á þessu fólki og þeir hræða mig ekki neitt með kjaftagangi. þess vegna langaði mig til að berja BB í hausinn með stærstu Biblíu sem til er í heimi og svo datt mér eitthvað meira í hug í reiðiskasti..

Óskar Arnórsson, 6.7.2008 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband