Skoðum málið frá annarri hlið

Kristið bæjarfélag í Indónesíu verður fyrir fólskulegri árás frá nær liggjandi bæjarfélagi

í litlum bæ, Horale að nafni þar sem aðallega Kristnar fjölskyldur búa, þann 2 maí síðastliðinn skeði sá skelfilegi atburður að ráðist var á bæinn. Þeir sem stóðu að baki árásarinnar voru aðallega Múslímar úr nærliggjandi bæ Saleman. Þessir aðilar brenndu til grunna 120 hús, þrjár kirkjur og skólahús bæjarins. Fjórir Kristnir einstaklingar voru myrtir og 56 særðir. 15 hektarar af ræktuðu landi voru eyðilagðir ásamt 20 smábátum og 2 mótorhjólum.

þrír af hinum fjórum sem myrtir voru, höfðu verið skornir á háls ásamt öðrum barsmíðum. Welhelmina Pattiasina sem er 47 ára gömul var fyrst pínd og 6 ára barnabarn hennar var rist á kvið. Edward Unwaru 84 ára var brenndur til dauða eftir að hafa verið skorin á háls. Fjórða fórnalambið Jósef Laumahina 39 ára gamall var skorinn og brenndur..

Í Horale búa 175 fjölskyldur eða samtals 2.300 persónur.

Upprunalega frétt af þræðinum Barnabas Fund.

Í Amsterdam má ekki ekki samkynhneigð viðgangast, þ.a.s samkvæmt vilja öfga Íslams

 Amsterdam - Drottningardagur þjóðhátíðar dagur sem heldur upp á afmæli Júlíönnu drottningar heitinnar, á hliðargötu við Rembrands stræti er tískusýning samkynhneigða sem varð fyrir hatursárás.

Mike Duprée sem er samkynhneigður og mótel var togaður niður af gangveginum af 10 ungum mönnum, þegar hann reyndi að verja sig var hann barin nokkrum sinnum. Þegar maður reyndi að koma honum til hjálpar urðu úr því frekari slagsmál. Allt þetta vegna sýningar sem átti að kenna umburðalyndi og samhug í samfélaginu til samkynhneigða.

Áður en allt fór úr böndunum var andrúmsloftið þegar orðið þrungið spennu. Samfélagið hafði þegar byrjað að tala um fötin og sumt sýningarfólk móðgað. Árásin á Du Pree var versta tilfellið. "Mike var einfaldlega dregin niður af göngupallinum" Sagði Jennifer Delano sem er var skipuleggjandi sýningarinnar. Árásar mennirnir sem voru af innflytjenda bakgrunni, og Múslímar samkvæmt henni. Árásin stóð ekki yfir lengi, en lögreglan náði ekki á staðinn í tæka tíð samt sem áður.

Þessi frétt komst heldur ekki í heimspressuna, hér er hægt að sjá smávægilega umræðu um þessa hatursárás. Hér er enn eitt andlit fjölmenningar samfélagsins. Með því að smella hér er hægt að lesa allt um málið.  Svo vildi ég þakka Önnu Karen fyrir að benda á þessa frétt.

Slæða eða ekki slæða, það er víst engin spurning

Eigandi hárgreiðslustofu var gert að greiða Bushra Noah 4.000 pund fyrir að ráða hana ekki til starfa sakir kynþátta og trúar fordóma, ástæða fordóma, Desrosiers sagði henni að hún gæti ekki unnið með slæðu þar sem viðskiptavinir þyrftu að geta séð mismunandi hárgreiðslur.

Samkvæmt hinni 19 ára Bushra Noah fyrir atvinnumála rétti, tók viðtalið 15 mínútur og að Desrosiers átti greinilega ekki von á því að hún bæri slæðu og að slíkt skuli ekki hafa verið tekið fram fyrirfram.

Dómurinn féllst ekki á að um væri að ræða beina fordóma, en dæmdi Bushra Noah  4000pund fyrir tilfinningalegt tjón sakir óbeinna fordóma. Þeir sögðu ennfremur að ekkert benti til þess að það hafi verið komið fram við hana öðruvísi vegna þess að hún var múslími eður ei sem sakir trúar  eða annarra þátta

Það er nefnilega það, það er ekki amalegt að geta farið í 15 mínútna viðtal og á endanum fengið nærri 500.000Isk fyrir ómakið. Slæða eða ekki slæða það er hin stóra spurning? Smella hér til að lesa alla fréttina.

Ég tók hér fyrir mismunandi fréttir úr mismunandi áttum, hver og einn verður að dæma fyrir sig hvað er í gangi, en fordómar og hatur er ljótt í hvaða mynd sem þeir eru settir fram, en á meðan þögnin ríkir og fréttir eru einhæfar þá er ekki hægt að berjast gegn þeim nema að hluta til, ábyrgðin liggur ekki bara hjá næsta náunga hún liggur líka hjá þér. Ég þekki nægilega marga Múslíma sem hrýs hugur við því sem er gert í nafni þeirra og ég mun seint ef aldrei hætta að skrifa um þessi mál, því þögnin er óvinur frelsis og lýðræðis sá sem kveður niður fréttir hefur ekkert að gera að búa í lýðræðisríki, sá sem kveður niður óp hinna aumu og særðu hefur ekkert með það að gera að kalla sig lýðræðissinna, sá sem kveður niður rödd alþýðunnar á ekki rétt á því að vera hluti af henni eða tala fyrir hennar hönd


mbl.is Danskir læknar sakaðir um fordóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hin hliðin er ljót.Góðann dag.Guð blessi þig

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 11:34

2 Smámynd: halkatla

argh

en samt flott grein! 

halkatla, 17.6.2008 kl. 15:23

3 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ég á bara ekki til orð Linda mín,en takk fyrir að benda á þetta.Bestu Kveðjur Úlli.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 17.6.2008 kl. 16:25

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Í fyrsta lagi er ekki langt þangað til að svona lagað gerist hér á landi. Sjáum dæmi Skúla Skúlasonar, þar var á ferðinni maður með sterkar skoðannir, og alveg eins og dæmunum sem þú telur upp Linda, þá er hann þaggaður niður. Og hver þaggar niður í honum? Hávær minnihlutahópur.

Spurningin er sú að vera vakandi fyrir frelsi okkar, og ekki leyfa litlum hópum að hafa of mikil völd í höndum sér. Seinast þegar ég gáði, þá er það meirihlutinn sem ræður í lýðræði, ekki minnihlutinn. Það er mergur málsins. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 18.6.2008 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband