Mikið er gott að heyra að hundurinn sé á lífi

og því má með sanni segja að það er ennþá betra að vita að mannvonskan var ekki þarna að verki eins og við vorum látin trúa.  Hér fór á ferð saga sem má kalla "úlfur, úlfur".  Hvað skildi þetta eftir sig?  Ég er að vona meiri meðvitund um dýravernd og ekki síður mannsæmandi framkomu við hvort annað og muna að allur er saklaus þangað til dæmdur sekur.

Nornaveiðar eiga ekki að eiga sér stað, að lýsa hneykslun og reiði yfir ofbeldi er eðlilegt enn aldrei nornaveiðar, múgæsingur eða hótanir.   Vonandi hefur þessi reynsla kennt okkur meiri mannúð. Myndin hér fyrir neðan er ekki af Lúkasi.  Sem ég vona að verði við hesta heilsu þrátt fyrir fjarveru frá eiganda sínum.

chinese crested 


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Óskarsson

"og því má með sanni segja að það er ennþá betra að vita að mannvonskan var ekki þarna að verki eins og við vorum látin trúa."

Látin trúa? Það var engin látin trúa nokkrum sköpuðum hlut. Það voru settar fram ásakanir sem voru frá fyrstu stundu afar óljósar og misvísandi. Það voru svo fjölmargir sem KUSU að trúa þessu án þess að neitt haldbært væri til að sýna fram á að nokkuð hafi gerst.  

Egill Óskarsson, 16.7.2007 kl. 23:21

2 Smámynd: Linda

Takk fyrir athugasemdirnar. Knús og friður til ykkar.

Linda, 17.7.2007 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda
Linda
Trúuð 42 árs(dæs) og glöð að eiga góða vini og fjölsk. Elska dýrin mín oft meira enn mannskepnuna, þau eru bara svo miklu auðveldari   Eitthvað fór það fyrir hjartað á sumum að þau skildu ekki sjá eftirnafn mitt..svo ég bæti því hér við Einars. Netfang vonogtru@gmail.com
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband